10sep15:0020:00Matur & Vín 2026Eftir
Innnes heldur stórsýninguna Matur & Vín 2026 þann 10. september í Korngörðum 3 þar sem um 50 erlendir birgjar munu kynna það besta úr heimi matar og víns. Sýningin stendur
Innnes heldur stórsýninguna Matur & Vín 2026 þann 10. september í Korngörðum 3 þar sem um 50 erlendir birgjar munu kynna það besta úr heimi matar og víns. Sýningin stendur yfir frá klukkan 15:00 til 20:00 og býður fagfólki og áhugasömum upp á innsýn í nýjungar og strauma í greininni.
10.09.2026 15:00 - 20:00(GMT+00:00)
05nóvAllan daginn06STÓRELDHÚSIÐ 2026Eftir
STÓRELDHÚSIÐ 2026 verður haldin í Laugardalshöll 5. – 6. nóvember 2026. STÓRELDHÚSIÐ hefur verið haldið annað hvert ár síðan 2005. Sýningarnar hafa stækkað og eflst ár frá ári. Er STÓRELDHÚSIÐ orðið helsti
STÓRELDHÚSIÐ 2026 verður haldin í Laugardalshöll 5. – 6. nóvember 2026.
STÓRELDHÚSIÐ hefur verið haldið annað hvert ár síðan 2005.
Sýningarnar hafa stækkað og eflst ár frá ári. Er STÓRELDHÚSIÐ orðið helsti staður fyrir starfsfólk stóreldhúsa að hittast og skoða vörur og þjónustu sem hinir fjölmörgu byrgjar hafa upp á að bjóða.
Öllu starfsfólki stóreldhúsa er boðið á sýninguna.
Að sögn Ólafs sýningarstjóra stefnir í öfluga sýningu í haust í Laugardalshöllinni.
Gefum Ólafi orðið:
„Sýningin “STÓRELDHÚSIÐ 2026 verður bæði fjölbreytt og afar áhugaverð. Það virðist mikil gróska sé á þessu sviði enda stóreldhúsageirinn fjölbreyttur og nær yfir vítt svið til veitingahúsa, mötuneyta og raunar miklu víðar þar sem matur er framreiddur.
Við höfum heyrt frá stóreldhúsum víða að af landinu. Þannig er greinilegt að mikill áhugi er að skoða allt það nýjasta í geiranum og hittast í Laugardalshöllinni. Stóreldhúsageirinn er í miklu uppáhaldi hjá okkur hjá okkur í fagsýningarfyrirtækinu Ritsýn enda er matur manns gaman.”
Sagði Ólafur að lokum.
STÓRELDHÚSIÐ 2026 hefst fimmtudaginn 5. nóvember og lýkur föstudaginn 6. nóvember. Sýningin hefst klukkan 12.00 báða dagana og lýkur klukkan 18.00.
Sem fyrr verður sýningin í Laugardalshöllinni sem er afar gott sýningarhúsnæði og þægileg aðkoma. Allt frítt fyrir starfsfólk stóreldhúsa enda fagsýning sem er ekki opin almenningi.
Kæra starfsfólk stóreldhúsageirans nú er um að gera að taka dagana frá!
Velkomin á STÓRELDHÚSIÐ 2026.
Sjáumst öll í haust,
Ólafur M. Jóhannesson
Sýningarstjóri STÓRELDHÚSIÐ 2026
[email protected] 698 8150
Inga
Markaðsstjóri
[email protected]
898 8022
Meira
05.11.2026 - 06.11.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
21nóvAllan daginn25Heimsmeistaramótið í matreiðslu haldið í LúxemborgEftir
Um 55 þjóðir frá öllum heimsálfum verða gestir í Luxembourg-Kirchberg dagana 21. – 25. nóvember 2026, þegar þar fer fram glæsileg matarmenningarhátíð sem uppfyllir hæstu alþjóðlegu gæðaviðmið og heimsviðburður í
Um 55 þjóðir frá öllum heimsálfum verða gestir í Luxembourg-Kirchberg dagana 21. – 25. nóvember 2026, þegar þar fer fram glæsileg matarmenningarhátíð sem uppfyllir hæstu alþjóðlegu gæðaviðmið og heimsviðburður í sýningarsölum LUXEXPO.
Heimsmeistaramótið í matreiðslu (Culinary World Cup) er eitt stærsta og virtasta mót heims, þekkt fyrir gæði og fagmennsku. Á mótinu keppa 30 landslið, 15 ungliðalandslið og 15 lið í flokki „Community Catering“, þar á meðal svæðislið og herlið. Þau elda þriggja rétta matseðla í átta keppniseldhúsum yfir fimm daga, að undangengnum margra mánaða undirbúningi og æfingum.
Auk þess taka þátt önnur lið sem keppa fyrir ákveðin svæði innan síns lands, sem og pastry chefs sem mæta til leiks í einstaklingskeppni.
Íslenska Kokkalandsliðið mun keppa á mótinu. Besti árangur liðsins hingað til er bronsverðlaun, sem markar mikilvægan áfanga í sögu íslenskrar matargerðar.
Fréttayfirlit um Kokkalandsliðið.
Ljósmynd: Ruth Ásgeirsdóttir
Meira
21.11.2026 - 25.11.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
Atvinnu-, og sölusíða veitingabransans
Starfsfólk í veitingabransanum
Veitingageirinn (Lokuð grúppa, aðeins fyrir fagmenn í veitingabransanum)
Ertu ekki að fá inngöngu en uppfyllir öll skilyrði? Sendu þá á okkur línu til staðfestingar.
