Vertu memm

Keppni

París 1920 í aðalhlutverki í árlegum keppnum Garra

Birting:

þann

Eftirréttur og Konfektmoli ársins 2025 - Skráning hafin

Frá keppninni um Eftirrétt ársins 2025. Mynd: Garri.is

Garri heldur keppnirnar Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins fimmtudaginn 5. nóvember á sýningunni Stóreldhúsið í Laugardalshöll.

Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins: Í fyrstu verðlaun er eftirréttanámskeið hjá Cacao Barry, nánari upplýsingar verða birtar síðar.

Nemaverðlaun: 50.000 kr. úttekt hjá Garra.

Keppnisrétt hafa þau sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamningi í fyrrnefndum greinum. Undantekningartilvik eru metin sérstaklega.

Þema ársins er París 1920.

Skylduhráefni

Súkkulaði frá Cacao Barry:

Cacao Barry Mi-Amére 58%: Djúpt dökkt súkkulaði með mildum ristuðum kakótónum og fíngerðum, örlítið súrum jurtakenndum undirtón.

Val er á milli tvegga púrra frá Capfruit:

Capfruit Apríkósu Puré: Púrran er framleidd úr Bergeron-apríkósum frá Rhône-dalnum í Frakklandi, afbrigði sem er sérstaklega metið í sætabrauðsgerð fyrir náttúrulegt jafnvægi milli sætu og sýru. Apríkósurnar hafa ríkan ilm, fallegan appelsínugulan lit og hreint ávaxtabragð sem nýtur sín vel í eftirréttum þar sem ferskleiki og áferð skipta máli.

EÐA:

Capfruit Grænepla Puré: Ávaxtapúrra úr grænum „Granny Smith“ eplum sem býður upp á einstaklega ferskt og svalandi bragð, með léttum sýrðum tónum og fallegum ljósgrænum pastelblæ. Eplin eru ræktuð aðeins nokkra kílómetra frá vinnslustöð Capfruit, í hlíðum Rhône-dalsins í Frakklandi.

Notkun á súkkulaði eða púrrum frá öðrum framleiðendum er ekki leyfileg í keppninni.

Skráning

Skráning fyrir Efirréttur ársins 2026

Skráning fyrir Konfektmoli ársins 2026

Grunnhráefnispakki til æfinga fylgir skráningu og greiðsla á 5.000 kr. staðfestingargjaldi. Gjaldið endurgreiðist þeim sem mæta samkvæmt tímaplani á keppnisstað. Staðfestingargjald skal leggja inn á reikning: 0301-26-000817; kt. 670892-2129.

Skráningarfrestur er til og með 20. október 2026.

 Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Eftirréttur ársins

 Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Konfektmoli ársins

Nánari upplýsingar veitir Silja í síma 858-3023 eða [email protected]

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið