Keppni
Margrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni

Margrét Gunnarsdóttir frá Gulla Arnari sigraði í Kornax-nemakeppninni í bakaraiðn 2026. Hér stendur hún með sigurlaunin og hluta af keppnisverkefnum sínum.
Margrét Gunnarsdóttir frá Gulla Arnari bar sigur úr býtum í Kornax-nemakeppninni í bakaraiðn sem fór fram í Hótel- og matvælaskólanum í október. Alls tóku 15 bakaranemar þátt í forkeppninni og tryggðu sex þeirra sér sæti í úrslitum.
Keppnin fór fram í tveimur lotum. Forkeppnin var haldin dagana 14.–15. október og úrslitakeppnin 20.–21. október. Að keppni lokinni var haldin sýning í matsal Hótel- og matvælaskólans þar sem gestum gafst tækifæri til að skoða afrakstur keppenda.
Margrét Gunnarsdóttir í fyrsta sæti
Margrét Gunnarsdóttir frá Gulla Arnari hafnaði í fyrsta sæti, Raluca-Naomi Cupsa frá Sandholti varð í öðru sæti og Áslaug Margrét Alfreðsdóttir frá Hygge í því þriðja.
Auk verðlauna fyrir þrjú efstu sætin voru veitt sérstök verðlaun fyrir flottasta skrautstykkið og besta aðstoðarmanninn.
Raluca-Naomi Cupsa frá Sandholti hlaut verðlaun fyrir flottasta skrautstykkið og Arna Karen Gísladóttir frá Hygge var valin besti aðstoðarmaðurinn.
Keppnin haldin í 28 ár
Kornax-nemakeppnin hefur verið haldin óslitið frá árinu 1998 og er fyrir löngu orðin einn af stærri viðburðum innan íslenskrar bakaraiðnar.
Keppnin hefur skipað mikilvægan sess í námi bakaranema og má áætla að flestir bakarar sem hafa útskrifast frá aldamótum hafi einhvern tíma tekið þátt í henni.
Keppnin var haldin í samstarfi Hótel- og matvælaskólans, Kornax og Landssambands bakarameistara.
Þriggja manna dómnefnd
Dómnefnd keppninnar skipuðu Guðmundur Helgi Harðarson fyrir hönd Líflands, Ari Hermannsson frá 280 bakaríi og Kristín Hrund Reynisdóttir fyrir hönd Hótel- og matvælaskólans.
Meðfylgjandi myndir tók Ásgeir Þór Tómasson bakarameistari.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn7 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar7 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð















