Keppni
Manuel Schembri og Oddný Ingólfsdóttir keppa fyrir Íslands hönd

Stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Frá vinstri: Peter Hansen, Alba E. H. Hough og Þorleifur „Tolli“ Sigurbjörnsson.
Einn stærsti viðburður norræna vínþjónaheimsins fer fram á Íslandi á morgun, sunnudaginn 20. september, þegar keppnin Besti vínþjónn Norðurlandanna 2026 verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica.
Sjá einnig: Fremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík
Vínsýning opin almenningi
Samhliða keppninni verður haldin vínsýning þar sem gestir geta notið sýningarinnar og fylgst með spennandi úrslitum á sviði. Þrír stigahæstu keppendurnir leysa þar krefjandi verkefni áður en Besti vínþjónn Norðurlandanna 2026 verður krýndur.
Vínþjónasamtök Íslands halda keppnina í ár og bjóða hingað til lands tíu af færustu vínþjónum Norðurlandanna, tvo frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.
Það er stór viðburður fyrir íslenska vínþjóna og veitingageirann í heild að fá þessa virtu keppni til landsins. Keppnin gefur vínáhugafólki og öðrum gestum einstakt tækifæri til að fylgjast með norrænni vínþjónustu og gestrisni á hæsta stigi.
Tveir öflugir fulltrúar Íslands
Ísland teflir fram tveimur sterkum og reynslumiklum keppendum, þeim Oddnýju Ingólfsdóttur og Manuel Schembri. Bæði hafa þau mikla reynslu af vínþjónastarfi og alþjóðlegum keppnum á hæsta stigi.
Oddný Ingólfsdóttir
Íslandsmeistari vínþjóna 2026
Oddný keppti fyrir Íslands hönd í ASI-keppninni um besta vínþjón Evrópu, Afríku og Mið-Austurlanda í Belgrad árið 2024 og hefur einnig tekið þátt í Norðurlandamóti vínþjóna.
Hún starfar sem veitingastjóri og yfirvínþjónn á Sumac, er með sveinspróf í framreiðslu og WSET Level 3-gráðu í vínfræðum. Þá kennir hún vínfræði við Hótel- og matvælaskólann í MK og hefur komið að þjálfun íslenskra keppenda fyrir alþjóðlegar fagkeppnir.
Manuel Schembri
14. sæti á heimsmeistaramóti 2023
Manuel varð Íslandsmeistari árið 2021 og hafnaði sama ár í 20. sæti í keppninni um besta vínþjón Evrópu og Afríku á Kýpur.
Á heimsmeistaramóti vínþjóna í París árið 2023 komst hann í 17 manna undanúrslit af 70 keppendum og hafnaði að lokum í 14. sæti. Manuel starfar sem Food & Beverage Manager hjá ÓX og Sel by ÓX. Norðurlandamótið í Reykjavík verður síðasta keppni hans í bili.
Meira en vínþekking ræður úrslitum
Heimur vínþjónsins er bæði víðamikill og flókinn. Starfið snýst ekki aðeins um vín heldur þurfa keppendur einnig að búa yfir þekkingu á sterkum drykkjum, bjór, kaffi, tei, öðrum drykkjum og matarmenningu víða að úr heiminum.
Í keppninni reynir jafnframt á nákvæmni, yfirvegun og framúrskarandi þjónustuhæfni við krefjandi aðstæður. Þrír stigahæstu keppendurnir komast áfram í úrslit þar sem þeir leysa fjölbreytt verkefni á sviði fyrir framan dómara og áhorfendur.
Fagfólk, vínáhugafólk og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta, njóta vínsýningarinnar og styðja Oddnýju og Manuel þegar þau takast á við fremstu vínþjóna Norðurlandanna.
Keppnin Besti vínþjónn Norðurlandanna 2026 fer fram á Hilton Reykjavík Nordica sunnudaginn 20. september frá kl. 14 til 18 og verður vínsýning opin almenningi samhliða keppninni.
Myndir: Vínþjónasamtök Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Keppni2 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn1 dagur síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði





