Viðtöl, örfréttir & frumraun
Vélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
Nýtt hátæknieldhús Icelandair á Keflavíkurflugvelli var formlega opnað í gær. Eldhúsið er eitt stærsta framleiðslueldhús landsins og þar er allur matur útbúinn sem fer um borð í flugvélar félagsins.
Í frétt visir.is kemur fram að nýjasta tækni sé nýtt í eldhúsinu og vélmenni sinni þar fjölbreyttum verkefnum. Þau sjá meðal annars um að útbúa matarbakka og flytja þá yfir í veitingavagna sem notaðir eru um borð í flugvélunum.
Fréttastofa Sýnar heimsótti eldhúsið og kynnti sér starfsemina og hlutverk vélmennanna. Þar var einnig rætt við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, um nýju aðstöðuna.
Myndir: Skjáskot úr myndbandi
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag





