Vertu memm

Frétt

QR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar

Birting:

þann

Fröken Selfoss

Veitingastaðir uppfylla ekki reglur um verðmerkingar með því einu að hafa QR-kóða við inngang sem vísar á matseðil á netinu. Þetta kemur fram í úrskurði áfrýjunarnefndar neytendamála sem staðfesti ákvörðun og sekt Neytendastofu gagnvart rekstraraðila veitingastaðarins Fröken Selfoss.

Neytendastofa greindi frá niðurstöðunni 2. nóvember, en úrskurður nefndarinnar var kveðinn upp 8. september síðastliðinn.

Matseðillinn þarf að vera sýnilegur

Málið hófst eftir að Neytendastofa kannaði verðmerkingar hjá verslunum og þjónustufyrirtækjum á Selfossi í janúar 2025.

Við skoðun á Fröken Selfoss kom í ljós að matseðill með verðskrá var ekki til sýnis við inngang staðarins. Rekstraraðilinn, ÁB veitingar ehf., hafði hins vegar komið fyrir fjórum skiltum fyrir utan veitingastaðinn með QR-kóða sem vísaði á matseðil og verðskrá á vefnum.

Áfrýjunarnefndin taldi þá framsetningu ekki jafngilda því að matseðillinn sjálfur væri sýnilegur við innganginn.

Samkvæmt reglum um verðupplýsingar við sölu á þjónustu skulu veitingahús ávallt hafa matseðil með verðskrá við inngöngudyr. Gestir eiga því að geta kynnt sér matseðilinn rétt innan eða utan við innganginn, án aðstoðar starfsfólks.

Fröken Selfoss

Matseðill inni á staðnum dugði ekki

Rekstraraðilinn benti einnig á að prentaðir mat- og drykkjarseðlar væru á barborði, um tveimur metrum frá innganginum.

Nefndin taldi það ekki fullnægjandi þar sem gestir þyrftu að ganga inn á veitingastaðinn og taka seðlana í hönd til að kynna sér verð og úrval. Matseðillinn þyrfti að vera sýnilegur við inngöngudyrnar.

Í úrskurðinum kom jafnframt fram að þótt mörgum neytendum væri tamt að nota QR-kóða fæli slíkt fyrirkomulag í sér minni upplýsingagjöf en reglurnar gerðu ráð fyrir.

Fröken Selfoss

Sektin staðfest

Neytendastofa lagði 50 þúsund króna stjórnvaldssekt á fyrirtækið 15. maí 2025. Rekstraraðilinn kærði ákvörðunina og taldi meðal annars að stofnunin hefði ekki veitt nægilega skýrar leiðbeiningar og að meðalhófs hefði ekki verið gætt.

Áfrýjunarnefndin féllst ekki á þær málsástæður og staðfesti ákvörðun Neytendastofu og sektarfjárhæðina.

Niðurstaðan hefur þýðingu fyrir íslenska veitingastaði sem hafa fært matseðla sína alfarið yfir á stafrænt form. QR-kóði getur áfram veitt gestum aðgang að ítarlegri upplýsingum, en samkvæmt úrskurðinum kemur hann ekki í stað sýnilegs matseðils með verðskrá við innganginn.

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.

Myndirnar eru frá formlegri opnun staðarins 29. september 2023. Myndir: Facebook/Miðbær Selfoss.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið