Keppni
Leitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
Undirbúningur fyrir hina árlegu brauðtertu- og ostakökukeppni á Selfossi er nú í fullum gangi, en keppnin fer fram þann 7. júní næstkomandi á Sjómannadaginn. Viðburðurinn hefur vaxið hratt á síðustu árum og er í dag orðinn einn stærsti kökuviðburður landsins.
Keppnin er haldin í samstarfi Kaffi Krús og Konungskaffi í miðbæ Selfoss. Keppendur baka kökurnar sínar heima og mæta síðan með þær á keppnisstað þar sem dómnefnd smakkar og velur sigurvegara í hverjum flokki. Vinningskökurnar fá í kjölfarið að rata tímabundið inn á matseðla beggja kaffihúsanna.
Keppnin hófst fyrir tólf árum sem einföld ostakökukeppni á Kaffi Krús en hefur síðan þróast í fjölmennan og vinsælan viðburð þar sem bæði áhugafólk og reynslumiklir bakarar taka þátt.
Í fyrra tóku um 17 keppendur þátt og aðstandendur búast við enn meiri þátttöku í ár. Nú þegar hafa tíu keppendur skráð sig til leiks.
Keppt verður í þremur flokkum. Fyrir bestu ostakökuna, bestu brauðtertuna og fallegustu kökuna þar sem útlit og framsetning vega þyngst.
Í verðlaun eru meðal annars ostakörfur frá MS auk hótelgistingar á Hótel Geysir, Hótel Vík og Hótel Örk. Þá fá allir keppendur einnig gjafabréf frá Kaffi Krús og Konungskaffi.
Skráning í keppnina fer fram hér.
Svipmyndir úr keppninni í fyrra
Þessar kökur kepptu til verðlauna árið 2025.
Sigurvegarar 2025
Frumlegasta kakan var ostakakan „Rabarbara- og engifer ostakaka“ eftir Önnu Höllu Hallsdóttur.
Verðlaun fyrir bestu ostakökuna hlaut Jónína Guðný Jóhannsdóttir fyrir kökuna „Sumarsæla“.
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir sigraði síðan í flokki bestu brauðtertunnar með „Skonsutertu með hangikjötssalati“.
Myndir: Facebook / Kaffi Krús
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð







