Markaðurinn
FoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
FoodCycler® framleiða byltingarkennd moltugerðartæki sem breyta matarafgöngum í næringarríkan jarðvegsbæti, tilbúinn til moltugerðar á örskotsstundu.
FoodCycler FC-75 er skilvirk og nútímaleg lausn fyrir lífrænan úrgang sem hentar sérstaklega vel fyrir fyrirtæki, mötuneyti og annan veitingarekstur. Með því að vinna lífrænan úrgang á staðnum hjálpar FC-75 fyrirtækjum að minnka rúmmál sorps, lækka rekstrarkostnað og taka aukna umhverfislega ábyrgð á einfaldan og sýnilegan hátt.
Tækið breytir matarafgöngum í lyktarlaust efni á fáeinum klukkustundum. Vinnslan getur minnkað rúmmál lífræns úrgangs um allt að 90% sem dregur gífurlega úr þörfinni á geymslu sorps, sorphirðu ásamt losunartíðni. Fyrir fyrirtæki sem vilja straumlínulaga rekstur sinn og minnka daglegt álag vegna lífræns úrgangs er FC-75 afar hentug lausn.
Uppsetning á FoodCycler FC-75 er einföld hvort sem tækið stendur á gólfi eða er fellt inn í innréttingu, engin þörf er á sérstakri uppsetningu né breytingum á húsnæði. Notkunin er einföld og nánast sjálfvirk: lífrænn úrgangur er settur í ílátið og vinnslulota er ræst með einum hnappi. Þetta gerir tækið aðgengilegt öllum án þjálfunar og dregur úr líkum á rangri flokkun eða mistökum.
Lokað vinnslukerfi og kolasíur tryggja að engin lykt sleppur frá tækinu, sem er sérstaklega mikilvægt á vinnustöðum ásamt því að stuðla að hreinlæti og ánægjulegra starfsumhverfi. FC-75 hentar því jafnt fyrir kaffistofur, mötuneyti og atvinnueldhús án þess að valda starfsfólki óþægindum.
Með því að vinna úrganginn á staðnum í stað þess að senda hann í urðun eða flutning minnkar kolefnisspor fyrirtækisins auk þess skapast raunverulegur grundvöllur fyrir ábyrga auðlindanýtingu. Úrgangsafurðina má nýta í moltugerð í samstarfi við sveitarfélög eða sem hluta af grænum verkefnum fyrirtækisins.
FoodCycler FC-75 er hagnýt fjárfesting því að minna sorpmagn getur leitt til í lægri kostnaðar við sorppoka, leigu á ruslatunnum, sorphirðu og geymslu, auk þess sem ferli í kringum úrgang verða einfaldari og snyrtilegri. Fyrirtæki geta þannig sameinað fjárhagslegan ávinning og samfélagslega ábyrgð í einni lausn.
Kynntu þér allt um Foodcycler moltugerðartækin með því að smella hér eða með því að hafa samband við söludeild Ásbjarnar á [email protected]
Einnig má koma við í sýningarsal okkar á Suðurlandsbraut 26 og skoða úrvalið.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn2 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?







