Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
LILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað

Natalia Lachova og Kristófer Hamilton Lord, sem standa að nýja veitingastaðnum LILJU í Kvosinni í miðbæ Reykjavíkur.
Matreiðslumaðurinn Kristófer Hamilton Lord og konditorinn Natalia Lachova eru að opna nýjan veitingastað, LILJU, að Templarasundi 3 í Kvosinni í miðbæ Reykjavíkur. Þau hafa bæði starfað á þekktum veitingastöðum erlendis og koma til Íslands með víðtæka reynslu úr veitingageiranum.
Á LILJU verður lögð áhersla á árstíðabundið íslenskt hráefni og matargerð þar sem ferskleiki, bragð og vandað hráefnisval verða í fyrirrúmi. Boðið verður upp á átta rétta smakkseðil sem tekur breytingum eftir árstíðum og framboði hráefna.
Starfaði á nokkrum af bestu veitingastöðum heims
Kristófer hefur á undanförnum árum starfað á nokkrum þekktum veitingastöðum víða um heim, meðal annars Manresa í Kaliforníu, Amass í Kaupmannahöfn, þar sem hann vann sig upp í stöðu yfirkokks, og Kadeau á Borgundarhólmi.
Hann hefur einnig starfað á Early June í París og tók ásamt Nataliu þátt í uppbyggingu veitingastaðarins Air í Singapúr. Natalia er sjálf reynslumikill konditor og hefur sérhæft sig í eftirréttum og sætabrauðsgerð.
Þau hafa lengi haft þann draum að opna eigin veitingastað og með LILJU er sá draumur nú að verða að veruleika.
Gísli Matthías hrósar nýja veitingastaðnum
Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumaður og einn eigenda Slippsins í Vestmannaeyjum, hefur farið fögrum orðum um nýja staðinn og þá sérstaklega störf Kristófers.
Bæði Kristófer og Natalia störfuðu áður á Slippnum, Kristófer í tvö sumur og Natalia í eitt sumar.
Gísli segir Kristófer hafa haft mikil áhrif á þróun matargerðarinnar á Slippnum, meðal annars með því að kynna nýjar aðferðir og hvetja starfsfólkið til að þróa hugmyndafræði staðarins enn frekar.
„Ég held að ég hafi aldrei haft starfsmann sem hjálpaði mér jafn mikið og Kristófer gerði þegar hann kom til okkar,“
segir Gísli.
Gísli var meðal gesta á prufukvöldverði á LILJU nú um helgina og hreifst af því hversu vel hafði verið hugað að öllum smáatriðum, allt frá hönnun staðarins til matargerðarinnar og vals á íslensku hráefni.
Hann segir opnunina vera eitt það mest spennandi sem gerst hafi í íslenskum veitingahúsarekstri í langan tíma og telur líklegt að erfitt verði að fá borð á staðnum þegar fram líða stundir.
Átta rétta smakkseðill og sæti við barborð
Á LILJU verður boðið upp á átta rétta smakkseðil sem kostar 19.900 krónur. Gestir geta einnig valið vínpörun með matnum á 11.900 krónur eða óáfenga drykkjapörun á 8.800 krónur.
Auk matsalarins verða átta sæti við barborð þar sem gestir geta komið án bókunar og pantað smárétti, aðra rétti og drykki af sérstökum matseðli.
Veitingastaðurinn mun leggja áherslu á samstarf við innlenda framleiðendur og matseðillinn tekur breytingum eftir því hvaða hráefni er í boði hverju sinni.
Hægt er að bóka borð á heimasíðu LILJU: www.restaurantlilja.is
Meðfylgjandi myndir tók Gísli Matthías Auðunsson og eru þær birtar hér með góðfúslegu leyfi hans.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð













