Viðtöl, örfréttir & frumraun
Laugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
Laugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli dagana 16. til 18. október með fjölbreyttri dagskrá þar sem tónlist, myndlist, vellíðan og góðar veitingar verða í aðalhlutverki.
Aðstandendur Laugarás Lagoon líta þakklátir til baka á viðburðaríkt fyrsta starfsár og segjast spenntir fyrir komandi vetri og þeim nýjungum sem eru fram undan.
Afmælishelgin verður með hátíðlegu yfirbragði og geta gestir meðal annars notið lifandi tónlistar, sérstakra saunagusa, myndlistarsýningar og brönss að hætti matreiðslumannsins Gísla Matts.
Fordrykkur, smáréttir og tónlist á föstudegi
Afmælishátíðin hefst föstudaginn 16. október þegar öllum gestum verður boðið upp á fordrykk og smárétti í boði hússins frá klukkan 17:00 til 18:30.
Frá klukkan 18:00 til 20:00 mun DJ Young Gaudi sjá um tónlistina við lónið og leika blöndu af house, diskó og fönki.
Afmælisgusa, myndlist og lifandi djass
Laugardagurinn 17. október hefst með sérstakri afmælisgusu og bröns undir yfirskriftinni Skynjaðu Laugarás. Dagskráin stendur frá klukkan 09:15 til 13:00 og er nauðsynleg að bóka borð.
Klukkan 14:00 verður myndlistarsýningin Farvegir eftir Sigmund Pál Freysteinsson á dagskrá, ásamt spjalli við listamanninn.
Síðar um daginn, frá klukkan 17:00 til 18:30, verður boðið upp á lifandi djass á veitingastaðnum Ylju þar sem þeir Hróðmar Sigurðsson og Birgir Steinn Theodorsson sjá um tónlistarflutning.
Gísli Matt býður upp á sérstakan afmælisbröns

Gísli Matthías Auðunsson, yfirkokkur og einn af þeim sem standa að veitingastaðnum Ylju í Laugarás Lagoon.
Bæði laugardaginn 17. október og sunnudaginn 18. október verður boðið upp á sérstaka morgundagskrá þar sem saunagusa, slökun og góður matur fara saman.
Þetta er í fyrsta sinn sem Laugarás Lagoon býður upp á slíkar morgunstundir, þar sem áhersla er lögð á að virkja skilningarvitin með hita, ilmi, bragði og kyrrð.
Dagskráin hefst með saunagusu undir stjórn Þóru Hrundar frá Munum. Þar verða hiti, ilmur og náttúra í forgrunni og boðið verður upp á drykki og léttar veitingar milli lota.
Að gusunni lokinni gefst gestum kostur á að njóta slökunar í lóninu með drykk á lónsbarnum.
Morgunstundinni lýkur síðan með sérstökum brönsplatta á veitingastaðnum Ylju, að hætti Gísla Matts.
Dagskráin stendur frá klukkan 09:15 til 13:00 báða dagana.
Afmæliskaka og sérstök tilboð alla helgina
Ýmislegt verður einnig í boði alla afmælishelgina. Gestir veitingastaðarins Ylju fá afmælisköku og fordrykkur fylgir öllum brönsplöttum.
Þá verður veittur 20% afmælisafsláttur af Rjóður vörum Laugarás Lagoon.
Með hátíðinni vilja aðstandendur Laugarás Lagoon þakka gestum fyrir viðtökurnar á fyrsta starfsárinu og bjóða þá velkomna til að fagna tímamótunum með sér.
Myndir: aðsendar
Tengt efni: Ylja opnar formlega við Laugarás Lagoon – Sjáðu myndir af réttunum og matseðilinn
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni5 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Frétt5 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró






