Vín, drykkir og keppni
NÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
Veitingastaðurinn NÆS í Vestmannaeyjum heldur til London um helgina þar sem teymið verður með pop-up á veitingastaðnum Mareida á morgun, sunnudaginn 20. september. Mikill áhugi hefur verið á viðburðinum og er nú fullbókað.
Pop-upið kemur í beinu framhaldi af sumrinu hjá NÆS, sem hefur nú lokað fyrir veturinn eftir gott og annasamt sumar í Vestmannaeyjum. Teymið heldur þó beint áfram til London þar sem markmiðið er að taka með sér smá hluta af Eyjum og kynna þá matargerð og nálgun sem hefur einkennt NÆS.
„NÆS er mjög tengt Vestmannaeyjum, hráefninu og umhverfinu sem við höfum í kringum okkur. Það er ótrúlega gaman að fá tækifæri til að taka þetta með okkur út og sýna okkar nálgun á íslenska og vestmanneyska matargerð í London.
Viðtökurnar hafa verið frábærar og það er sérstaklega gaman að fara út vitandi að kvöldið er fullbókað,“
segir Gísli Matthías Auðunsson, einn eigenda NÆS.
Kvöldið er samstarf NÆS og Mareida, veitingastaðar í SOHO í London sem fókusar á matargerð Chile. Teymin tvö hafa sett saman sérstakan matseðil þar sem matargerð NÆS mætir bragðheimi Mareida.
Frá NÆS verða meðal annars réttir með fiski, þorskvængjum og lambasíðu ásamt skyri, Rabbabara, íslenskum jurtum og öðrum hráefnum sem tengjast matargerð staðarins og Vestmannaeyjum.
Ferðin til London verður þannig eins konar lokapunktur á sumarið hjá NÆS áður en staðurinn fer í vetrarfrí.
„Við erum ótrúlega þakklát öllum sem komu til okkar í sumar og ekki síst frábæra teyminu okkar. Það er alltaf sérstakt að reka veitingastað í Vestmannaeyjum yfir sumarið og við erum strax farin að hlakka til að opna aftur næsta sumar.
En fyrst ætlum við að taka NÆS aðeins út fyrir Eyjar og enda sumarið saman í London.“
Segir Gísli að lokum.
Myndir: Karl Petersson
-
Keppni6 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar3 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt2 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember








