Viðtöl, örfréttir & frumraun
Bragð af Loire-dalnum á Matur & Drykk
Aurora Pélier Cady, pastry chef og eigandi Sweet Aurora Reykjavík, og vínþjónninn Evan Leigh Reynolds standa fyrir sérstökum matar og vínviðburði á veitingastaðnum Matur & Drykk á Granda miðvikudaginn 23. september.
Viðburðurinn ber yfirskriftina Dinner in Loire og verður Loire-dalurinn í Frakklandi í aðalhlutverki. Aurora mun að þessu sinni færa sig út fyrir heim sætabrauðsgerðar og matreiða hefðbundna rétti frá heimahögum sínum, innblásna af matargerðinni sem hún ólst upp við.
Evan Leigh Reynolds, sem sérhæfir sig í vínum, sér um vínpörun kvöldsins. Hann mun velja vín frá Anjou-héraði í Loire-dalnum sem pöruð verða sérstaklega við rétti Aurora.

Matseðill kvöldsins á Dinner in Loire, þar sem réttir frá Loire-dalnum eru paraðir við sérstaklega valin vín frá héraðinu.
Matur bernskunnar í aðalhlutverki
Aurora er sætabrauðskokkur og eigandi Sweet Aurora Reykjavík. Viðburðurinn markar ákveðin tímamót hjá henni, enda er þetta í fyrsta sinn sem hún stendur fyrir matarviðburði af þessu tagi í samstarfi við vínsérfræðing þar sem áherslan er ekki á sætabrauðsgerð.
Gestum gefst því tækifæri til að kynnast matargerð Loire-dalsins í gegnum rétti sem eiga rætur í bernsku og heimahögum Aurora, ásamt vínum frá sama landsvæði.
Dinner in Loire fer fram á Matur & Drykk á Granda miðvikudaginn 23. september og hefst stundvíslega klukkan 19.
Takmarkað sætaframboð er á viðburðinn og þarf að bóka fyrirfram. Borðapantanir fara fram í gegnum netfangið [email protected]. Facebook viðburður hér.
Kynningarmyndband
Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband fyrir viðburðinn sem @fabsnaps.official gerði.
View this post on Instagram
Myndir: úr safni / Kökuverslunin Sweet Aurora
-
Keppni7 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt3 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“





