Vissir þú þetta?
Um vefinn – Frítt að auglýsa omfl.
Í rúmlega 25 ár höfum við flutt fréttir úr veitingabransanum á vefnum okkar sem er mikið sóttur af veitingamönnum og upphafssíða hjá mörgum þeirra. Að vefnum standa fagmenn í veitingageiranum og er öll vinna unnin í sjálfboðavinnu.
Markmið okkar er að efla umræðu í veitingageiranum, fagkeppni og auka upplýsingaflæði. Öllum er frjálst að senda inn fréttaefni og greinar á veitingageirinn.is.
Hvað birtum við?
Áhersla er lögð á fréttir úr veitingageiranum, viðburði, fólkið á bak við tjöldin, fagkeppni og almennt efni úr bransanum jafnt sem innlendar og erlendar fréttir.
Margar leiðir eru fyrir lesendur vefsins að koma sínu efni á framfæri.
Auglýsingar þér að kostnaðarlausu
Þessar leiðir eru ekki ætlaðar heildsölum til auglýsinga, en slíkum auglýsingum verður umsvifalaust eytt út.
Eftirfarandi eru þær leiðir sem í boði eru fyrir lesendur vefsins að koma sínu efni á framfæri öllum að kostnaðarlausu:
Podcast / Hlaðvarp
Á forsíðunni og með öllum fréttum birtum við nýjustu íslensku hlaðvörpin frá hinum ýmsum streymisveitum. Smellið hér til að senda inn tillögu af hlaðvarpi.
Viðburðardagatal
Hér á vefnum hefur verið í notkun viðburðardagatal í nær 15 ár, þar sem hægt er að fylgjast með hvað framundan er í veitingabransanum.
Við bjóðum veitingahús, hótel, félagasamtök og aðra starfsemi að auglýsa í viðburðardagatalinu, en þessar birtingar eru án endurgjalds.
Sendu allar upplýsingar um viðburðinn í gegnum þetta form.
Nýtt á matseðli
Nú gefst fagmönnum, sælkerar (áhugafólk), veitingahús, bakarí ofl. kostur á að senda inn myndir af réttum, kokteilum, kjötvörum ofl. í gegnum einfalt form, öllum að kostnaðarlausu.
Myndirnar birtast fyrir miðju á forsíðunni, (sjá allar myndir hér), undir dálknum: „Frá lesendum – Nýtt eða spennandi á matseðli“.
Smellið hér til að senda inn.
Uppskriftir
Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttum og bragðgóðum uppskriftir. Góð leið fyrir þá sem vilja auglýsa Instagram sitt, facebook síðuna osfr. Sendu inn uppskrift hér.
Uppskriftavefur veitingageirans á facebook er hægt að nálgast með því að smella hér.
Instagram – @Veitingageirinn
Instagram myndir merktar @veitingageirinn birtast sjálfkrafa á forsíðu Veitingageirans. Hvetjum alla lesendur Veitingageirans, fagmenn og áhugafólk um mat og vín, að merkja myndir sínar eða vídeó með „hashtaginu“ #veitingageirinn og leyfið okkur að fylgjast með. Athugið að myndir birtast ekki á listanum ef Instagram er stillt á „private“ hjá þér!
Gamlir matseðlar
Matur – Vínmenning – Fróðleikur ofl. er undirsíða þar sem finna má ýmis skjöl mat-, vínseðla, kokteila ofl sem safnast hefur í gegnum árin hér á vefnum. Hægt er að senda á okkur seðla ef þú vilt bæta við safnið á netfangið [email protected] eða í gegnum þetta form.
Kíktu á safnið hér.
Smáauglýsingar
Við bjóðum upp á nokkrar leiðir fyrir þig til að auglýsa. Hafðu samband í gegnum þetta form (smella hér) eða sendu okkur tölvupóst á [email protected] fyrir nánari upplýsingar.
Hvar birtast fréttirnar?
Fréttir og annað efni birtist ekki einungis á forsíðu veitingageirans, heldur dreifast þær víða.
Allar fréttir birtast á facebook læk-síðu veitingageirans hér.
Á twitter hér.
Og á fréttabréfið okkar hér.
Uppskriftir birtast á forsíðunni og á tveimur facebook læk-síðum, þ.e. hér og hér. Einnig sendast þær á fréttabréfið fyrir lesendur sem hafa óskað sérstaklega eftir því að fá sendar uppskrifir frá fréttabréfakerfinu hér.
Samfélagsmiðlar
Veitingageirinn.is er með öflugt tengslanet á samfélagsmiðlum, en þér er líka velkomið að fylgjast með okkur með því að smella á eftirfarandi vefslóðir:
Facebook grúppur:
Starfsfólk í veitingabransanum
Atvinnu-, og sölusíða veitingabransans
Veitingageirinn (Lokuð grúppa, aðeins fyrir fagmenn í veitingabransanum)
Ertu ekki að fá inngöngu en uppfyllir öll skilyrði? Sendu þá á okkur línu til staðfestingar.
Auglýsing – Heildsölur og önnur fyrirtæki
Hvað er innifalið?
Logo, hliðarbanner, senda inn ótakmarkaðan fjölda tilkynninga sem birtast á forsíðu, sem einnig sendist á fréttabréf veitingageirans og margt fleira.
Um 2000 manns í bransanum heimsækja vefinn daglega
Smellið hér til að lesa fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.
Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar.
![](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2018/02/veitingageirinn.png)
Podcast / Hlaðvarp
![Siggi Chef valinn besti götubitinn](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/gotubiti-2024-80x80.jpg)
Siggi Chef valinn besti götubitinn
![Vel heppnuð bjórhátíð á Akureyri – Myndaveisla](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/bjorhatid-lyst-80x80.jpg)
Vel heppnuð bjórhátíð á Akureyri – Myndaveisla
![Kaffipressan](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/kaffipressan-80x80.jpg)
Nýtt kaffihús opnar við Ráðhústorgið á Akureyri
![Stórstjörnur í matreiðslukeppni - Vídeó - Stórstjörnurnar Hugh Jackman, Ryan Reynolds, Gordon Ramsay og dóttir hans Matilda Ramsay](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/mtr-keppni-gordon-80x80.jpg)
Stórstjörnur í matreiðslukeppni – Vídeó
![Uppskrift - Heilsteiktur lambahryggur á veisluborðið með kryddjurtum og möndlum](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/lambahryggur-80x80.jpg)
Uppskrift – Heilsteiktur lambahryggur á veisluborðið með kryddjurtum og möndlum
![Svona lítur fyrsti síldarrétturinn út sem framreiddur var úr nýju eldhúsi í Salthúsinu - Síldarkaffi - Síldarminjasafnið](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/sildarkaffi-6-80x80.jpg)
Svona lítur fyrsti síldarrétturinn út sem framreiddur var úr nýju eldhúsi í Salthúsinu
![Skráning hafin - Opna Dineout 10. ágúst á Hlíðavelli](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/dineout-golf-80x80.jpg)
Skráning hafin – Opna Dineout 10. ágúst á Hlíðavelli
![Ólöglegt bleikiefni í tveimur tegundum af hveiti](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/bleikiefni-80x80.jpg)
Ólöglegt bleikiefni í tveimur tegundum af hveiti
![Vel heppnuð bjórhátíð á Akureyri – Myndaveisla](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/bjorhatid-lyst-80x80.jpg)
Vel heppnuð bjórhátíð á Akureyri – Myndaveisla
![Innköllun á Beutelsbacher Epla- og Gulrótarsafa](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/gulrotasafi-innnes-80x80.jpg)
Innköllun á Beutelsbacher Epla- og Gulrótarsafa
![Kaffipressan](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/kaffipressan-80x80.jpg)
Nýtt kaffihús opnar við Ráðhústorgið á Akureyri
![Stórstjörnur í matreiðslukeppni - Vídeó - Stórstjörnurnar Hugh Jackman, Ryan Reynolds, Gordon Ramsay og dóttir hans Matilda Ramsay](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/mtr-keppni-gordon-80x80.jpg)
Stórstjörnur í matreiðslukeppni – Vídeó
![Andrea Ylfa Guðrúnardóttir, framleiðslumeistari](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/sumarkokteill-andrea-80x80.jpg)
Einfaldur, ferskur og góður sumarkokteill – Vídeó
![Melabúðin við Hagamel í Vesturbæ Reykjavíkur](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/07/melabudin-80x80.jpg)
Nýir eigendur á Melabúðinni í Vesturbæ – Horfðu á skemmtilega heimildarmynd um Melabúðina hér
![Girnilegur eftirréttur - Góð nýting á banana og ekkert til spillis](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/06/banana-hydi-80x80.jpg)