Vín, drykkir og keppni
Boðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum

Dagskrá kynningarferðarinnar miðvikudaginn 23. september, þar sem veitingafólki gefst kostur á að heimsækja fjóra íslenska framleiðendur í tengslum við Negroni Week.
Samtök Eimingarhúsa bjóða veitingafólki í sérstaka kynningarferð miðvikudaginn 23. september þar sem heimsótt verða fjögur íslensk eimingarhús.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Klakavinnsluna og Barþjónaklúbb Íslands í tengslum við Negroni Week.
Í ferðinni gefst fólki úr veitingageiranum tækifæri til að líta inn fyrir dyr íslenskra eimingarhúsa, kynnast framleiðsluaðferðum þeirra og smakka á því sem þar er framleitt.
Þátttaka er veitingafólki að kostnaðarlausu en sætafjöldi í rútunni er takmarkaður. Því er áhugasamt fagfólk hvatt til að skrá sig tímanlega.
Bransaspjall yfir Negroni
Síðasti viðkomustaður ferðarinnar verður hjá Þoran Distillery, framleiðanda Marberg gins. Þar verður ferðinni lokið með léttu bransaspjalli yfir Negroni, auk þess sem boðið verður upp á smakk frá Cocchi og bjór frá Ölgerðinni.
Skráning í ferðina fer fram með tölvupósti á [email protected].
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Keppni2 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn1 dagur síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði




