Keppni
Negroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
Negroni hlaupið á Íslandi 2026 fer fram fimmtudaginn 24. september á Austurvelli í Reykjavík. Þar mætast hreyfing, góð stemning og ítalskur elegans með heldur óhefðbundnum hætti.
Hlaupið er hluti af dagskrá Negroni Week, en samhliða því verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Yfir 40 staðir verða jafnframt með sérstakan Negroni seðil alla vikuna.
Þrír hringir um Austurvöll
Negroni hlaupið fer fram á milli kl. 17 og 18 og verður hlaupið þrjá hringi um Austurvöll. Upphaf og endir hlaupsins verður við Gilligogg.
Fyrirkomulagið er einfalt. Allir þátttakendur hefja hlaupið með glas með klaka frá Klakavinnslunni.
Að loknum fyrsta hring velja þátttakendur á milli Tanqueray, Gin Mare, Marberg, Lost Explorer, Amaro Montenegro og Don Julio. Eftir annan hring er Campari bætt í glasið og fyrir síðasta hringinn velja þátttakendur Cocchi Vermouth að eigin vali.
Sá sem kemur fyrstur í mark með fullbúinn Negroni vinnur hlaupið.
Skráning fer fram á Bar.is og takmarkaður fjöldi kemst að.
Hrafnkell gestabarþjónn á Gilligogg
Að hlaupi loknu tekur við lífleg stemning og tónlist og verður að sjálfsögðu boðið upp á Negroni fyrir þá þátttakendur sem náð hafa löglegum aldri.
Hrafnkell Gissurarson, sigurvegari Negroni Week árin 2023 og 2024, verður gestabarþjónn á Gilligogg frá kl. 18 til 20.
Áfengislausir valkostir verða einnig í boði.
Þátttakendur eru hvattir til að safna saman vinahópnum og taka þátt, en þar sem takmarkaður fjöldi kemst að er ráðlagt að tryggja sér þátttöku tímanlega.
Negroni hlaupið er haldið af Barþjónaklúbbi Íslands í samstarfi við Ölgerðina og Drykk.
Njótið áfengis af ábyrgð. 20 ára aldurstakmark er á áfenga drykki.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Keppni2 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn1 dagur síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði





