Keppni
Alexander Jósef stóð uppi sem sigurvegari með „Chris Pine“
Alexander Jósef frá OTO stóð uppi sem sigurvegari í kokteilakeppninni Three Cents – The Last Sip Showdown sem fram fór á SKÝ Lounge & Bar miðvikudagskvöldið 16. september.
Tíu barþjónar kepptu til úrslita fyrir fullu húsi og kynntu hver sinn kokteil fyrir dómurum og gestum. Alexander sigraði með kokteilnum „Chris Pine“, Heimir Morthens frá Drykk varð í öðru sæti með „Latitude“ og Svanhvít Thea Árnadóttir frá Veður tók þriðja sætið með „G&TEA“.
- Heimir Morthens frá Drykk hafnaði í öðru sæti með kokteilinn „Latitude“.
- Svanhvít Thea Árnadóttir frá Veður hafnaði í þriðja sæti með kokteilinn „G&TEA“.
Dómarar kvöldsins voru Sam Trevethyen, vörumerkjasendiherra, Elna María Tómasdóttir, varaforseti Barþjónaklúbbs Íslands, Jónína Unnur Gunnarsdóttir, heiðursfélagi Barþjónaklúbbs Íslands, og Róbert Aron Proppé, ein af skærari stjörnum íslensku barsenunnar.
Keppnin var sett upp með nokkuð óvenjulegum hætti. Á meðan DJ sá um tónlist fyrir gesti í hefðbundnu hljóðkerfi staðarins fór kynning keppendanna fram í sérstöku hljóðkerfi. Gestir sem vildu fylgjast með gátu sett á sig þráðlaus heyrnartól og heyrt alla kynningu keppandans án þess að stöðva tónlist eða annað sem var í gangi í salnum.

Gleðin leyndi sér ekki þegar Alexander Jósef frá OTO var kynntur sem sigurvegari The Last Sip Showdown.
Kerfið var prófað í fyrsta sinn á keppninni og kom vel út. Hugmyndin var að skapa meira líf í kringum keppnina og gera gestum kleift að velja sjálfir hvort þeir fylgdust náið með hverjum keppanda eða nytu einfaldlega stemningarinnar á staðnum.
Kvöldið snerist því um meira en aðeins úrslitin. Keppendur fengu vettvang til að sýna eigin stíl, hugmyndir og framkomu og gestir fengu að kynnast betur þeirri vinnu sem liggur að baki hverjum kokteil.
Three Cents – The Last Sip Showdown var haldin í samstarfi við Three Cents, Coca-Cola Europacific Partners, SKÝ Lounge & Bar og Barþjónaklúbb Íslands.
Myndir; Barþjónaklúbb Íslands
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember







