Keppni
Elvar keppti fyrir Íslands hönd í Singapore
Ísland átti fulltrúa á „35th Asia Pacific Cocktail Competition“, sem fram fór í Singapore dagana 24.–27. ágúst 2026. Fyrir hönd Barþjónaklúbbs Íslands tók Elvar Halldór Hróarr Sigurðsson þátt sem keppandi, en með honum í för var Helgi Aron Ágústsson, stjórnarmaður BCI, sem gegndi einnig hlutverki þjálfara.
Til keppninnar mættu hæfileikaríkir barþjónar og fulltrúar barþjónasamtaka frá fjölmörgum löndum. Fyrir íslenska teymið var þátttakan bæði verðmæt reynsla og mikilvægt tækifæri til að kynna íslenska barþjónamenningu á alþjóðlegum vettvangi.
Elvar stóð sig vel í keppninni, en komst ekki áfram í úrslit að þessu sinni.
„Mér fannst keppnin ganga mjög vel hjá mér, þó svo að ég hafi ekki komist áfram í úrslitin. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið þetta tækifæri og fyrir að fá að keppa fyrir Íslands hönd.
Þetta var frábær reynsla og ég kann virkilega að meta traustið og tækifærið sem Teitur og Barþjónaklúbbur Íslands gáfu mér,“
segir Elvar Halldór Hróarr Sigurðsson.
Helgi Aron Ágústsson fylgdi Elvari utan sem þjálfari og fulltrúi BCI og annaðist jafnframt samskipti við önnur barþjónasamtök á meðan á mótinu stóð.
Úrslit úr lokakeppninni voru eftirfarandi:
Klassísk Kokteilagerð:
Sigurvegari – Rosy Pham, Vietnam
2. sæti – Chin-Yu Hsieh, Taiwan
3. sæti – Natalia Beaumont, Australia
Flair:
Sigurvegari – Aldrin Javar, Singapore
Sérstök verðlaun – You-Ting Wu, Taiwan
Sérstök verðlaun – Ricky Michael, Indonesia
Barþjónaklúbbur Íslands óskar sigurvegurum og öllum þátttakendum innilega til hamingju og þakkar jafnframt gestgjöfum í Singapore fyrir góðar móttökur og vel heppnað mót.
„Alþjóðleg þátttaka af þessu tagi skiptir okkur miklu máli. Hún gefur íslenskum barþjónum bæði reynslu og tengsl sem skila sér aftur inn í íslenska barsenu.
Við erum afar stolt af Elvari fyrir að hafa keppt fyrir Íslands hönd og Helga fyrir að hafa staðið með honum sem þjálfari og fulltrúi klúbbsins,“
segir Teitur Riddermann Schiöth, forseti Barþjónaklúbbs Íslands.
Mynd: aðsend
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




