Keppni
Alþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
Barþjónaklúbbur Íslands sendir í fyrsta sinn keppanda á 35. Asia-Pacific kokteilkeppnina, sem fram fer í Singapore dagana 24.–27. ágúst. Sjálf keppnin fer fram 25. ágúst á Clarke Quay Fountain Square, þar sem keppendur víðs vegar að koma saman og etja kappi í kokteilgerð.
Fyrir hönd Íslands fara Elvar Halldór Hróarr Sigurðsson, keppandi, og Helgi Aron Ágústsson, stjórnarmaður Barþjónaklúbbs Íslands og þjálfari. Þetta er í fyrsta sinn sem Barþjónaklúbbi Íslands er boðið að taka þátt í keppninni og markar því spennandi skref í alþjóðlegu starfi klúbbsins.
- Elvar Halldór Hróarr Sigurðsson
- Helgi Aron Ágústsson
Elvar hafnaði í 4. sæti á Íslandsmóti barþjóna (ICC) fyrr á árinu og fær nú tækifæri til að stíga á alþjóðlegt svið í Singapore.
Þátttakan er hluti af þeirri stefnu Barþjónaklúbbs Íslands að skapa fleiri tækifæri í kringum Íslandsmeistaramót barþjóna og dreifa alþjóðlegri keppnisreynslu á breiðari hóp af fremstu keppendum landsins. Markmiðið er að alþjóðleg tækifæri einskorðist ekki eingöngu við Íslandsmeistarann heldur geti fleiri þeirra sem sýna framúrskarandi árangur á mótinu fengið tækifæri til að sanna sig utan landsteinanna.
Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson, sem hafnaði í 2. sæti á ICC, fær þannig einnig sitt alþjóðlega tækifæri í ár. Hann mun taka þátt í Lotus Prestige Cup í Macau, sem fer fram samhliða Heimsmeistaramóti barþjóna í lok október.
Þar verður einnig Leó Snæfeld, Íslandsmeistari barþjóna, sem mun bera fána Íslands á stærsta og mikilvægasta móti ársins, World Cocktail Championship (WCC).
Með þessari stefnu vill Barþjónaklúbbur Íslands verðlauna góðan árangur á Íslandsmótinu, byggja upp breiðari hóp reynslumikilla keppenda og gefa fleiri íslenskum barþjónum tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu á alþjóðlegum vettvangi.
Í Singapore bíður Elvars alvöru áskorun, en jafnframt einstakt tækifæri til að kynna íslenska kokteilmenningu og keppa við öfluga barþjóna á alþjóðlegum vettvangi.
Það eru bjartir tímar framundan hjá íslenskum barþjónum.
Barþjónaklúbbur Íslands óskar Elvari og Helga góðrar ferðar og góðs gengis í Singapore.
Fylgist með ævintýrum þeirra og gangi mála á Instagram: @bartendericeland
Myndir: Barþjónaklúbbur Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn7 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar7 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð





