Vertu memm

Markaðurinn

„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“

Birting:

þann

Íslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð

Nú bætist einstaklega girnileg nýjung í ostafjölskylduna hjá MS en í fyrsta sinn kemur á markað íslenskur mascarpone með súkkulaðibragði.

Um er að ræða spennandi sérútgáfu sem kemur á markað nú í lok Ostóber og í aðdraganda jólahátíðarinnar. Silkimjúkur og rjómakenndur mascarpone fær hér ljúffengt súkkulaðibragð og útkoman er í einu orði sagt ómótstæðileg.

„Ostóber er kjörið tækifæri til að leika sér aðeins með ostana okkar og koma fólki á óvart. Okkur langaði að bjóða upp á eitthvað extra girnilegt í ár og súkkulaði og mascarpone reyndust einfaldlega ótrúlega góð blanda.

Þetta er skemmtileg sérútgáfa sem við vonum að fólk prófi á sem allra fjölbreyttastan hátt,“

segir Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri hjá MS.

„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“

Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri hjá MS

Það besta er nefnilega að það eru engar reglur um hvernig á að njóta hans. Mascarpone með súkkulaðibragði er dásamlegur með ferskum ávöxtum og berjum, frábær í kökur, krem og aðra eftirrétti og tilvalinn í bakstur.

„Svo má auðvitað líka grípa skeið og njóta hans nákvæmlega eins og hann er beint upp úr dósinni, við dæmum engan,”

segir Gréta.

Íslenskur Mascarpone með súkkulaðibragði býður upp á endalausa möguleika fyrir þá sem vilja gera eitthvað gott enn betra. Prófaðu þig áfram, leyfðu hugmyndafluginu að ráða og hver veit nema nýja uppáhaldið þitt leynist í dósinni.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið