Markaðurinn
Rabarbara trifle með stökku krönsi
Ég sá svipaða pælingu á netinu um daginn og gat ekki hætt að hugsa um hana fyrr en ég væri búin að prófa mína útfærslu.
Nú er nóg af rabarbara alls staðar en ég greip frosinn, niðurskorinn rabarbara úr frystinum síðan um daginn og úr varð þessi dýrindis eftirréttur!
Uppskrift dugar í um 5 glös/skálar
Innihald
5 skammtar
Bakaður rabarbari
| 600 g | niðurskorinn rabarbari (ferskur eða frosinn) |
| 100 g | sykur |
| 1 stk. | vanillustöng |
| 1⁄2 stk. | sítróna (safinn) |
Kröns
| 70 g | haframjöl |
| 70 g | hveiti |
| 60 g | púðursykur |
| 80 g | smjör (kalt, skorið í teninga) |
| 1⁄4 tsk. | salt |
Mascarpone rjómi
| 100 g | mascarpone ostur frá Gott í matinn |
| 350 ml | rjómi frá Gott í matinn |
| 1 msk. | flórsykur |
| 1 tsk. | vanillusykur |
Aðferð
Bakaður rabarbari
Hellið rabarbaranum í stórt eldfast mót eða ofnskúffu og hitið ofninn í 180°C.
Dreifið úr sykrinum yfir, kreistið sítrónuna og skafið fræin úr vanillustönginni með því að kljúfa hana. Leyfið einnig vanillustönginni sjálfri að bakast með fyrir betra bragð.
Hrærið allt saman, setjið álpappír yfir og bakið í 40 mínútur.
Fjarlægið vanillustangirnar og hrærið öllu vel saman, getið aðeins stappað bitana svo úr verði gróft mauk.
Kælið alveg áður en þið setjið saman.
Kröns
Setjið allt í skál og klípið/hnoðið saman með höndunum.
Dreifið síðan úr á ofnplötu og bakið í 20 mínútur við 180°C.
Ég setti þetta inn með rabarbaranum og gott er að hræra aðeins í blöndunni á miðri leið.
Kælið alveg áður en þið setjið saman.
Mascarpone rjómi
Setjið allt í hrærivélina og þeytið saman þar til léttþeytt (samt þannig að blandan leki ekki til).
Samsetning
Setjið kúfaða matskeið af krönsi í botninn á hverju glasi, næst kúfaða matskeið af rabarbarablöndu og síðan um tvær matskeiðar af rjómablöndu. Dreifið aðeins úr hverju lagi fyrir sig og endurtakið.
Skreytið með því að setja smá meira kröns á toppinn og blóm að eigin vali.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir / Gottimatinn.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði





