Markaðurinn
Ostóber hefst með sex rétta osta- og vínpörun

Mjólkursamsalan heldur októbermánuð hátíðlegan undir yfirskriftinni Ostóber – tími til að njóta osta. Við hefjum herlegheitin með glæsilegri 6 rétta osta- og vínpörun þann 30. september. Húsið opnar 18:30 og borðhald hefst 19:00
Meistarar Ostakjallarans hafa töfrað fram einstakan matseðil þar sem ostarnir fá að njóta sín í hverjum rétti, ásamt vandlega völdum drykkjum sem fullkomna upplifunina.
Þetta verður kvöld fyrir öll skilningarvit – fullt af bragði, fróðleik og skemmtilegum samsetningum.
Upplifun sem enginn matar- og ostaunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.
Diskur 1 og 2 – Tommasi Prosecco
50 g Burrata með pikluðum rababara og sultuðum rababara
Dala Höfðingi með ferskum jarðarberjum frá Jarðarberjalandi
Dala Gullostur með kasjúhnetum og honey cone
Þeyttur ostakubbur í olíu og tómat chutney úr heirloom tómötum frá Friðheimum
Logi kex með argentískri risarækju salaverde
Diskur 3 – Snorri bjór & La Baume Sauvignon Blanc „Les Maries“
Reykir á flatköku með smjöri
Feykir með brenndu smjöri og ristuðum hnetum
Gouda 12+ með nauta fille og demi glace
Diskur 4 – Cono Sur Organic Pinot Noir rauðvín
Lamba carpaccio með djúpsteiktum Dala Brie og sultuðum rauðlauk
Óðals Ísbúi með stökkri parmaskinku og gráfíkjur hot honey
Óðalsostur með kaffi og hunangi
Diskur 5 – Portvín Sandeman Founders Reserve
Stóri Dímon með íslensku wasabi
Ljótur með döðlumauki
Flamberaður gráðaostur í rommi með súkkulaði og piparkökumulningi
Diskur 6 desert – Louis Eschenauer Sauternes sætvín
Chili Auður vaffla með hrásykri og rifsberjahlaupi
Þeyttur mysingur í vatnsdeigsbollu
Súkkulaði mascapone á hafrakexi með karamellusósu og hindberjum
Verð 13.900 kr. á mann.
Einnig er boðið uppá óáfenga vínpörun
Plássið er takmarkað – skráðu þig eða bókaðu borð strax í dag!
https://www.dineout.is/sjaland/event/ostober
-
Frétt7 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni6 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt1 dagur síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku



