Markaðurinn
Ostur sem lyktar eins og „sviti og eftirsjá“
Heimur ostanna er fjölbreyttur og stundum kemur lyktin jafnvel meira á óvart en bragðið. Bjarki Long, framreiðslumeistari og ostasérfræðingur, var nýlega gestur í Bítinu á Bylgjunni þar sem hann ræddi um osta og kynnti væntanleg ostanámskeið hjá Iðunni fræðslusetri.
Námskeiðin verða haldin 16. október og 4. desember. Þar leiðir Bjarki þátttakendur í gegnum fjölbreytt úrval osta, allt frá mildum og mjúkum til kraftmikilla og langþroskaðra tegunda. Smakkaðir verða hátt í tuttugu ostar, ásamt fjölbreyttu meðlæti og úrvali vína og bjóra.
Fjallað verður um uppruna og framleiðslu ostanna og hvernig þroskun, geymsla og hitastig hafa áhrif á bragð og áferð. Þá verður pörun í aðalhlutverki: Hvaða vín eða bjór hentar með hverjum osti og hvernig getur meðlætið skapað jafnvægi og dregið fram það besta í bragðinu?
Námskeiðin henta bæði áhugafólki um góða osta og fagfólki í veitinga- og þjónustugeiranum sem vill efla þekkingu sína og geta ráðlagt gestum af meira öryggi um val á ostum og drykkjum.
Verð er 12.500 kr., en félagsfólk Iðunnar greiðir aðeins 3.000 kr. Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Skráning:
Smellið hér til að lesa nánar um ostanámskeiðin, sem haldin verða 16. október og 4. desember..
Hægt er að horfa á viðtalið við Bjarka Long á visir.is, þar sem hann ræðir meðal annars um osta og væntanleg ostanámskeið.
Mynd; úr safni
-
Keppni6 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn5 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt4 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni20 klukkustundir síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn17 minutes síðanLíður að jólum




