Viðtöl, örfréttir & frumraun
Litlu hlutirnir skipta mestu máli hjá Agga Sverris
Það eru oft smáatriðin sem gera gæfumuninn. Þau atriði sem margir taka ekki eftir en geta haft afgerandi áhrif á upplifun, gæði og árangur. Þetta er meginþema nýs þáttar í þáttaröðinni Litlu hlutirnir með Kára Sverris á Vísi, þar sem kastljósinu er beint að matreiðslumanninum Agga Sverrissyni.
Agga Sverrir er Michelin-stjörnu kokkur og hefur um árabil verið í fremstu röð íslenskra matreiðslumanna. Hann hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir metnaðarfulla matargerð og einstakt handbragð.
Í þættinum ræðir Kári Sverris við Agga Sverri um ferðalag hans, ástríðu fyrir matreiðslu og þau gildi sem hafa mótað feril hans og skilað honum þeim árangri sem hann hefur náð.
Sérstök áhersla er lögð á veitingastaðinn Moss, þar sem hvert smáatriði skiptir máli. Allt frá vali á hráefni og nákvæmni í vinnubrögðum til þeirrar upplifunar sem gestir fá við heimsókn á staðinn. Jafnframt er sýnt hvernig þessi hugsun nær langt út fyrir eldhúsið og endurspeglast í vinnubrögðum, þolinmæði og virðingu fyrir ferlinu.
Boðskapur þáttarins er skýr: Oft eru það litlu hlutirnir sem skapa stærstu augnablikin og þar gæti leyndarmál velgengninnar einmitt legið.
Hægt er að horfa á þáttinn hér að neðan:
Myndir: Skjáskot úr myndbandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Markaðurinn6 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn5 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt1 dagur síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Keppni5 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn4 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni5 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september






