Viðtöl, örfréttir & frumraun
Michelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna

Nicolai Nørregaard í kokkagallanum eftir að Kadeau bættist í hóp þriggja stjörnu Michelin-veitingastaða.
Michelin-stjörnurnar fyrir Norðurlöndin árið 2026 voru kynntar við hátíðlega athöfn í tónleikasalnum í Tívolí í Kaupmannahöfn í dag. Engar breytingar urðu á stöðu íslenskra Michelin-veitingastaða, en einn nýr íslenskur veitingastaður bættist á lista Michelin yfir staði sem eftirlitsmenn leiðarvísisins mæla sérstaklega með.
Dill varð fyrsti íslenski veitingastaðurinn til að hljóta Michelin-stjörnu þegar staðurinn fékk viðurkenninguna árið 2017. Frá þeim tíma hefur Dill haldið stjörnunni, að undanskildu árinu 2019. Veitingastaðurinn ÓX bættist í hóp Michelin-veitingastaða árið 2022 þegar staðurinn hlaut sína fyrstu stjörnu og fékk síðar einnig græna Michelin-stjörnu fyrir áherslu á sjálfbærni. Sú viðurkenning fellur nú niður ásamt öllum grænum Michelin-stjörnum á heimsvísu eftir að Michelin ákvað að leggja flokkinn af. Moss hlaut sína fyrstu Michelin-stjörnu árið 2023 og heldur henni áfram líkt og hinir íslensku Michelin-veitingastaðirnir.
Michelin-stjörnur á Íslandi 2026
Ein Michelin-stjarna
Dill
ÓX
Moss
Michelin mælir með þessum íslensku veitingastöðum
Lóla
Tides
Matur og drykkur
Sümac
Hosiló
OTO
Lóla er nýr á listanum í ár en að öðru leyti helst íslenski hlutinn óbreyttur.
Nýjar Michelin-stjörnur á Norðurlöndum
Alls fengu níu veitingastaðir sína fyrstu Michelin-stjörnu í ár.
Danmörk
Lille Mølle, Kaupmannahöfn
Akme, Kaupmannahöfn
Bach & Nurup, Álaborg
Okê, Skagen
Esse, Kaupmannahöfn
Noregur
Mirabelle, Bekkjarvik
Credo, Osló
Kvitnes Gård, Kvitnes
Finnland
Boreal
Tveir veitingastaðir hlutu aðra Michelin-stjörnu.
Noregur
Gaptrast, Bergen
Finnland
Grön, Helsinki
Kadeau fær þriðju Michelin-stjörnuna
Ein stærsta frétt kvöldsins var að danski veitingastaðurinn Kadeau í Kaupmannahöfn hlaut sína þriðju Michelin-stjörnu og færist þar með í hóp virtustu veitingastaða heims.
Eftirtaldir fimm veitingastaðir halda áfram þremur Michelin-stjörnum sínum á Norðurlöndum:
Geranium, Danmörku
Maaemo, Noregi
Frantzén, Svíþjóð
Jordnær, Danmörku
Re-Naa, Noregi
Sérstakar viðurkenningar
Michelin veitti einnig nokkrar sérstakar viðurkenningar á hátíðinni.
Young Chef Award 2026
Andreas Ring Kjeldsholm Hansen hjá Krogs í Danmörku.
Sommelier Award 2026
Rudimante Belardi Galeone hjá þriggja stjörnu veitingastaðnum Maaemo í Noregi.
Service Award 2026
Carl Frosterud hjá tveggja stjörnu veitingastaðnum Aira í Svíþjóð.
Opening of the Year 2026
Adam Dahlberg og Albin Wessman fyrir veitingastaðinn Adam Albin.
Hægt er að horfa á alla Michelin-hátíðina í myndbandinu hér að neðan.
Mynd: Skjáskot úr myndbandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn3 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn2 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt7 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt6 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni2 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Frétt7 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins


