Frétt
Retreat við Bláa Lónið eina íslenska hótelið með tvo Michelin-lykla
Retreat-hótelið við Bláa Lónið hefur hlotið sinn annan Michelin-lykil og er þar með eina íslenska hótelið sem státar af tveimur lyklum. Greint er frá þessu á mbl.is.
Nýtt alþjóðlegt úrval Michelin-lykilhótela var kynnt 18. september og færist Retreat upp um flokk eftir að hafa áður verið með einn lykil. Hótelið er jafnframt eitt aðeins fimm hótela á Norðurlöndunum sem hafa hlotið tvo Michelin-lykla.
Michelin-lyklarnir eru viðurkenning fyrir hótel og eru veittir á þremur stigum, líkt og Michelin-stjörnur veitingastaða. Tveir lyklar tákna einstaka dvöl og við matið er meðal annars horft til arkitektúrs og innanhússhönnunar, gæða og samræmis í þjónustu, sérstöðu hótelsins, verðgildis og tengsla við umhverfið.
Fimm íslensk hótel hafa Michelin-lykil. Auk Retreat eru það UMI hótel, The Reykjavík EDITION, Hótel Rangá og Highland Base í Kerlingarfjöllum.
Nánar er fjallað um viðurkenninguna á mbl.is.
Mynd: bluelagoon.com
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum




