Viðtöl, örfréttir & frumraun
Yfir 166 þúsund krónur á mann fyrir veitingar á heimaleik Fulham
Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur kynnt til sögunnar nýja veitingaupplifun á heimaleikjum á Craven Cottage, þar sem boðið verður upp á matargerð sem hlotið hefur meðmæli Michelin-handbókarinnar.
Upplifunin ber heitið „Constance on Matchdays“ og er unnin í samstarfi við veitingastaðinn Constance við Fulham Pier. Michelin-stjörnukokkurinn Adam Byatt stýrir verkefninu en yfirkokkurinn Charlie Crote hefur umsjón með matreiðslunni.
Á matseðlinum verður lögð áhersla á vandaða og árstíðabundna rétti. Gestir fá einnig úrvalsvín, kampavín og kokteila en vínlistinn telur um 200 vín.
Í pakkanum eru auk þess sæti við miðlínu vallarins, úrvalsdrykkir og tækifæri til að hitta leikmenn Fulham.
Fulham verður fyrsta knattspyrnufélagið í Bretlandi sem býður upp á veitingaupplifun á heimaleikjum sem hlotið hefur meðmæli Michelin-handbókarinnar. Veitingastaðurinn er þó ekki með Michelin-stjörnu heldur er hann á lista handbókarinnar yfir staði sem hún mælir með.
Verðið er mismunandi eftir leikjum en getur farið yfir 1.000 pund á mann, sem samsvarar rúmlega 166 þúsund íslenskum krónum. Fyrst verður boðið upp á upplifunina þegar Fulham tekur á móti Chelsea á Craven Cottage mánudaginn 24. ágúst næstkomandi.
Mynd: fulhamfc.com
-
Markaðurinn5 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn6 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt2 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni1 dagur síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni




