Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Michelin-stjörnukokkurinn Max Cekot opnar nýjan veitingastað í Riga

Veitingahjónin Natalya Cekot og Max Cekot hafa byggt upp eitt þekktasta veitingahús Lettlands. Nú hafa þau opnað nýjan veitingastað, Kíce, í Riga.
Lettneski Michelin-stjörnukokkurinn Max Cekot hefur opnað nýjan veitingastað í heimaborg sinni Riga. Staðurinn ber nafnið Kíce og markar nýjan kafla í ferli kokksins sem hefur vakið athygli fyrir metnaðarfulla matargerð sína og varð fyrstur til að hljóta Michelin-stjörnu í Lettlandi.
Kíce er 60 sæta veitingastaður sem staðsettur er í iðnaðarhverfi í Riga og er ætlað að vera afslappaðri mótvægi við Michelin-veitingastaðinn Max Cekot Kitchen. Áherslan er á nútímalegan mat þar sem gæði hráefna, árstíðabundin nálgun og vandvirkni í matreiðslu eru í fyrirrúmi.
- Frá framkvæmdum í apríl 2026
Ólíkt hefðbundnum matseðlum er ekki skipt upp í forrétti og aðalrétti. Þess í stað býður Kíce upp á 21 rétt sem gestir geta blandað saman að eigin smekk. Réttirnir taka reglulegum breytingum eftir árstíðum og aðgengi að hráefni.
Innanhússhönnun staðarins sameinar hlýlegt yfirbragð á meðan eldhúsið leggur áherslu á bragð, gæðavöru og rétti sem henta vel til að deila við borðið.
Ferill Max Cekot hefur verið fjölbreyttur. Hann starfaði um árabil í eldhúsum í New York og London, þar á meðal á veitingastöðum sem tengdust breska stjörnukokknum Gordon Ramsay. Síðar sneri Max Cekot aftur til Riga þar sem hann stofnaði, ásamt eiginkonu sinni Nataliu, veitingastaðinn Max Cekot Kitchen.
Sá veitingastaður skrifaði sig í sögubækurnar þegar hann varð fyrsti lettneski veitingastaðurinn til að hljóta Michelin-stjörnu. Með opnun Kíce færist áherslan frá löngum smakkseðlum yfir í frjálslegra og óformlegra veitingahús þar sem gestir geta komið saman, deilt réttum og notið matarupplifunar á eigin forsendum.
Þrátt fyrir breytta nálgun segir Max Cekot í tilkynningu að sömu grunngildi séu áfram leiðarljósið. Nákvæmni, jafnvægi í bragði og mikil athygli á smáatriðum sem hafa mótað orðspor hans á undanförnum árum.
Myndir: Facebook / Kice Restaurant
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn1 dagur síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Markaðurinn7 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Frétt6 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt4 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Frétt6 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins
-
Keppni13 klukkustundir síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast













