Bocuse d´Or
Myndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir og Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir, aðstoðarkokkur hennar fyrir Bocuse d’Or, ásamt forsetahjónunum Höllu Tómasdóttur og Birni Skúlasyni.
Styrktarkvöldverður til heiðurs og stuðnings við Snædísi Xyzu Jónsdóttur var haldinn á veitingastaðnum EIRIKSDÓTTIR laugardaginn 26. september síðastliðinn.
Kvöldverðurinn var uppbókaður og meðal gesta voru forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, auk fjölmargra vel þekktra einstaklinga úr íslenska veitingageiranum, fagfólks og sælkera.
Tilefni kvöldsins var stórt. Snædís hefur tryggt sér sæti í úrslitum Bocuse d’Or sem fram fara í Lyon í Frakklandi í janúar 2027. Undirbúningur hennar og teymisins fyrir keppnina er þegar hafinn af fullum krafti og var kvöldverðurinn liður í fjáröflun fyrir verkefnið.
Stórskotalið Bocuse d’Or kokka
Það var sannkallað stórskotalið íslenskra matreiðslumanna sem tók höndum saman í eldhúsinu þetta kvöld. Kokkarnir eiga það sameiginlegt að hafa keppt fyrir Íslands hönd í Bocuse d’Or og búa því yfir mikilli reynslu af einni virtustu matreiðslukeppni heims.
Dagskráin hófst klukkan 18 með fordrykk og smáréttum áður en kvöldverðurinn tók við. Sérvalin vín voru pöruð við réttina og að sögn gesta var maturinn á heimsmælikvarða.
Veisla frá upphafi til enda
Hákon Már Örvarson, sem keppti árið 2001, bauð upp á reyktan ál og andalifur. Sigurður Laufdal, keppandi Íslands árin 2013 og 2021, útbjó gnocchi fritti með Jamón Ibérico, Parmigiano og truffluhunangi og Sigurður Helgason, sem keppti árið 2015, bauð upp á túnfisk með gerjaðri plómu.
Sigurjón Bragi Geirsson, fulltrúi Íslands árið 2023, reið á vaðið meðal aðalréttanna með bleikju, tómötum og wasabi. Viktor Örn Andrésson, sem keppti árið 2017, bauð upp á humar með jarðskokkum og estragoni.
Þráinn Freyr Vigfússon, keppandi Íslands árið 2011, útbjó rétt úr Sandvíkurrófum, bökuðu skyri, súrdeigsstökki, reyktu andareggi og brúnuðu smjöri.
Sindri Guðbrandur Sigurðsson, sem keppti fyrir Íslands hönd árið 2025, bauð upp á þorsk með ígulkeri, graskeri, hafþyrni og grænum ertum.
Snædís sjálf tók að sjálfsögðu þátt í veislunni og bauð gestum upp á nautalund með smokkfiski og humar-aioli. Um var að ræða rétt sem á rætur að rekja til forkeppni Bocuse d’Or 2026.
Sætur endir á Bocuse d’Or veislunni
Friðgeir Ingi Eiríksson, sem keppti í Bocuse d’Or árið 2007, og Sveinn Þorri Þorvaldsson sáu um lokaþátt kvöldsins.
Þeir buðu upp á Pavlovu „Eiríksdóttir“ með ætiblómum, blómatei, ástaraldini og vanillu.
Kvöldið var glæsilegt í alla staði og gaf gestum tækifæri til að upplifa matargerð íslenskra Bocuse d’Or kokka á hæsta stigi, um leið og þeir lögðu sitt af mörkum til verkefnis Snædísar og teymis hennar.
Fram undan eru annasamir mánuðir hjá Snædísi og teyminu þegar lokaundirbúningurinn fyrir Bocuse d’Or hefst fyrir alvöru. Þar mun hún stíga á eitt stærsta svið alþjóðlegrar matreiðslu og keppa fyrir Íslands hönd í Lyon í janúar 2027.
Arnaldur Halldórsson ljósmyndari fangaði stemninguna á EIRIKSDÓTTIR þetta eftirminnilega kvöld og má sjá svipmyndir frá veislunni í meðfylgjandi myndasafni.
Myndir: Arnaldur Halldórsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni5 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau




































