Viðtöl, örfréttir & frumraun
Nýjar hugmyndir úr tilraunaeldhúsi Noma á matseðilinn
Danski veitingastaðurinn Noma í Kaupmannahöfn hefur opnað fyrir bókanir í hádegisverð þrjár helgar í nóvember og desember.
Haustið er nú að taka við á Noma og nýir réttir og hráefni eru smám saman að færa sig úr tilraunaeldhúsi staðarins yfir á matseðilinn, að því er fram kemur í tilkynningu frá veitingastaðnum.
Boðið verður upp á hádegisverð 14. nóvember, 5. desember og 20. desember og þegar hefur verið opnað fyrir bókanir.
Nýir réttir líta dagsins ljós
Noma birti jafnframt myndir af nokkrum réttum sem gefa innsýn í það sem gestir geta átt von á þegar líður á haustið og veturinn.
Þar má meðal annars sjá kræklingaréttinn „Mussel Shot“, „Pinecone Waffle“, haustlegt ceviche, „Cream Pie“, rækjubrauð með rækjum úr firðinum, rétt sem nefnist „Lobster Brain“ og eftirrétti þar sem meðal annars koma við sögu plómur og rósaldin.
Réttirnir bera sterk einkenni þeirrar nálgunar sem Noma hefur lengi verið þekktur fyrir, þar sem árstíðir, hráefni úr náttúrunni og óhefðbundnar aðferðir eru í fyrirrúmi.
Nýr kafli hjá Noma
Noma opnaði á ný í Kaupmannahöfn í ágúst á þessu ári eftir dvöl liðsins í Los Angeles. Samhliða því tók við nýtt fyrirkomulag þar sem matseðillinn þróast frá mánuði til mánaðar í takt við árstíðir, hráefni, veður og náttúru.
Fyrir nóvember, desember og janúar hefur Noma boðað meiri áherslu á villibráð, sjávarfang, villta sveppi, varðveitt grænmeti og ber ásamt hráefni sem safnað var og varðveitt yfir hlýrri mánuði ársins.
Noma hefur um árabil verið eitt þekktasta nafn norrænnar matargerðar á alþjóðavísu.
Veitingastaðurinn, undir forystu René Redzepi, hefur haft mikil áhrif á þróun norrænnar matargerðar og varð meðal annars handhafi þriggja Michelin stjarna árið 2021.
Núverandi matseðill Noma í Kaupmannahöfn kostar 4.500 danskar krónur. Vínpörun kostar 2.000 danskar krónur og safapörun 1.500 danskar krónur.
Bókanir fyrir hádegisverðina þrjá eru þegar hafnar hjá Noma.
Ljósmyndir tók Ditte Isager og eru þær birtar á Facebook síðu Noma.
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta










