Keppni
Myndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
Negroni vikan er alþjóðleg góðgerðarvika sem fór fram með glæsibrag 21.-27.september þar sem 36 staðir víðs vegar um landið tóku þátt og Negroni var í aðalhlutverki.
Barþjónaklúbbur Íslands heimsótti þátttökustaði og lagði mat á drykkina í leit að besta Negroni, besta óáfenga Negroni og viðurkenning veitt fyrir bestu notkun samfélagsmiðla.
Dagskráin var sérlega fjölbreytt með sérstökum Negroni drykkjarseðlum yfir í kokteilakvöld, pop-up viðburði, Negroni hlaup og pub quiz. Markmiðið var ekki aðeins að fagna klassískum kokteil heldur einnig að skapa skemmtileg tilefni fyrir gesti, barþjóna og veitingafólk til að hittast og njóta.
Negroni pub quiz á Röntgen var nýung í ár þar sem fullt var út úr dyrum og stemningin frábær. Keppendur glímdu við spurningar tengdar Negroni og drykkjarmenningu og unnu skemmtilega vinninga frá Campari.
Negroni hlaupið fékk svo aldeilis að finna fyrir íslensku haustveðri um morguninn en veðurguðir blessuðu svo hlaupið sjálft með frábæru veðri. Stemningin hélt áfram á Gilligogg þar sem Keli frá Skál! tók á móti gestum með pop-up Negroni seðli og sagði gestum frá upplifun sinni í Negroni Open í Stokkhólmi sem hann tók þátt í helgina á undan fyrir hönd Campari á Íslandi.
- Veður hlaut verðlaun fyrir besta óáfenga Negroni á Negroni vikunni 2026.
- Röntgen hlaut viðurkenningu fyrir bestu stafrænu nærveruna á Negroni vikunni 2026.
Lokahóf vikunnar fór fram á Veður í gærkvöldi þar sem barþjónar og veitingamenn komu saman til að skála fyrir vel heppnaðri viku og verðlaun voru veitt fyrir afburða frammistöðu.
Niðurstöðurnar Barþjónaklúbbsins voru:
Besti Negroni: Fiskmarkaðurinn
Besti óáfengi Negroni: Veður
Besta stafræna nærvera: Röntgen
Negroni vikan sýndi vel hversu fjölbreytt og lifandi veitingasenan er hér á landi. 36 þátttökustaðir, fjölbreytt dagskrá og mikil þátttaka bæði fagfólks og gesta sem skemmtu sér í þágu góðs málefnis með Negroni í hönd.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau























