Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

Frá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði

Birting:

þann

Frá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði

Ólafur Björgvin ásamt starfsfólki veitingastaðarins Domestic í Árósum í Danmörku, þar sem hann stundaði starfsnám síðastliðið vor í gegnum Erasmus+ áætlunina.

Níu verknemar frá Hótel og matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi fóru í starfsnám erlendis á síðasta skólaári í gegnum Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins. Nemendurnir fengu tækifæri til að starfa við sitt fag á vinnustöðum sem þeir völdu sjálfir.

Nemendurnir héldu til Belgíu, Danmerkur, Írlands og Noregs þar sem þeir dvöldu í sex til tólf vikur. Starfsnámið fór meðal annars fram í konditoríum, frönsku bakaríi og á Michelin-stjörnu veitingastöðum.

Starfsreynsla á alþjóðlegum vettvangi

Skólinn tekur árlega þátt í alþjóðlegu samstarfi og hefur hlotið Erasmus+ aðild á sviði starfsmenntunar. Aðildin auðveldar nemendum að sækja starfsnám erlendis og kennurum að taka þátt í námsferðum og starfsþróun á alþjóðlegum vettvangi.

Nemendur geta farið í starfsnám erlendis á meðan námi stendur eða allt að einu ári eftir útskrift.

Starfsnámið gefur nemendum tækifæri til að kynnast nýjum vinnubrögðum, öðlast reynslu í alþjóðlegu starfsumhverfi og efla faglega þekkingu sína.

Heim með dýrmæta reynslu

Hjá Hótel og matvælaskólanum er lögð áhersla á að nemendur komi heim reynslunni ríkari, með nýja þekkingu, minningar og víðari sýn á möguleika sína í framtíðinni.

Á meðal þeirra sem nýttu sér tækifærið var Ólafur Björgvin, sem starfaði á veitingastaðnum Domestic í Árósum í Danmörku síðastliðið vor.

Erasmus+ samstarfið opnar þannig nýjar dyr fyrir verðandi fagfólk í matvæla- og veitingagreinum og gefur nemendum tækifæri til að öðlast reynslu utan landsteinanna áður en þeir hefja störf að námi loknu.

Mynd: Facebook / Menntaskólinn í Kópavogi

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið