Nemendur & nemakeppni
Opnað fyrir umsóknir í Hótel- og matvælaskólann fyrir vorönn 2027
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Hótel- og matvælaskólann í Menntaskólanum í Kópavogi fyrir vorönn 2027. Umsóknarfrestur er frá 1. til 31. október og fer innritun fram á innritun.is.
Á vorönn verða kenndir 1., 2. og 3. bekkur í matreiðslu, 3. bekkur í framreiðslu, 3. bekkur í bakstri og 3. bekkur í kjötiðn, að því gefnu að næg þátttaka náist. Þá verður einnig boðið upp á seinni önn í námi matsveina.
Ferilbók og handleiðsla meistara
Nemendur sem stefna á iðnnám í hótel- og matvælagreinum þurfa að hafa virka ferilbók og starfa undir handleiðslu meistara.
Til þess að geta innritast í viðkomandi bekk þurfa nemendur að hafa lokið ákveðnu lágmarkshlutfalli ferilbókarinnar. Hlutfallið er mismunandi eftir iðngreinum og bekkjum.
Ferilbókin þarf að vera útfyllt með texta, myndum og myndböndum og hver liður sem nemandi hefur lokið þarf að vera samþykktur af meistara. Aðrar reglur gilda um nemendur sem eru á pappírssamningum.
Í matreiðslu og framreiðslu þarf ferilbókin að vera 30% útfyllt fyrir 1. bekk, 55% fyrir 2. bekk og 80% fyrir 3. bekk.
Í bakstri og kjötiðn þarf ferilbókin að vera 45% útfyllt fyrir 1. bekk. Annar bekkur er bóklegur og því er ekki gerð krafa um ákveðið hlutfall ferilbókar. Fyrir 3. bekk þarf hún að vera 80% útfyllt.
Ferilbókin þarf að vera fullkláruð fyrir sveinspróf
Áður en sótt er um sveinspróf þarf ferilbókin að vera 100% útfyllt með texta, myndum og myndböndum. Meistari þarf jafnframt að hafa yfirfarið hana í heild sinni og samþykkt.
Sveinspróf eru haldin tvisvar á ári og er lokafrestur til að sækja um 1. apríl og 1. nóvember ár hvert. Mikilvægt er því að ferilbókin sé tilbúin tímanlega áður en umsóknarfrestur rennur út.
Umsóknarfrestur um skólavist fyrir vorönn 2027 er til 31. október.
Mynd: mk.is / Rúnar Hreinsson.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn4 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni6 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Frétt3 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Markaðurinn6 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




