Keppni
Pétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau

Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson með verðlaunin eftir sigur í Xifeng-vörumerkjaflokki klassísku keppninnar í Lotus Prestige Cup í Macau
Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson vann í dag Xifeng-vörumerkjaflokkinn í klassískri kokteilgerð í Lotus Prestige Cup í Macau. Keppnin er alþjóðleg baijiu-kokteilkeppni sem fer fram samhliða heimsmeistaramóti barþjóna og ráðstefnu International Bartenders Association (IBA).
Sjá einnig: Leó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
Sigurinn er glæsilegur árangur fyrir Pétur. Pétur keppti fyrir Íslands hönd í klassískri kokteilgerð, þar sem kínverska brennivínið baijiu var í aðalhlutverki. Þema keppninnar, „Oriental Fusion“, hvatti keppendur til að tengja karakter þess við önnur hráefni og eigin hugmyndir.
Sex baijiu-vörumerki með sérstök flokksverðlaun
Í keppninni var keppendum úthlutað einu af sex baijiu-vörumerkjum: Qinghua Fenjiu, Guotai, Renhuai Jiangxiangjiu, Xifeng, Huadu Qingjiang og Qinghua Lang. Veitt voru sérstök verðlaun fyrir besta kokteilinn innan hvers vörumerkjaflokks, bæði í klassískri kokteilgerð og flair, auk sérstakra heildarverðlauna.
Pétur sigraði í Xifeng-flokknum í klassískri kokteilgerð. Samkvæmt úthlutunarlista skipuleggjenda voru fulltrúar Íslands, Malasíu, Macau, Spánar og Kína í þeim flokki. Í verðlaun fékk Pétur 5.000 Hong Kong dali, sem eru um 77 þúsund krónur.
Yfirvegun þrátt fyrir óhapp
Pétur sýndi mikið öryggi í keppninni og hélt yfirvegun sinni þrátt fyrir að hafa skorið sig við undirbúning skreytingar. Hann hélt sínu striki og hlaut nánast fullkomna einkunn fyrir tæknilega framkvæmd og fagleg vinnubrögð.
Hann náði jafnframt til salarins og dómaranna með orðunum: „Það íslenska í kokteilnum er ég! Það verður ekki íslenskara en það.“
Frá verðlaunasæti á Íslandi til sigurs í Macau
Pétur varð í öðru sæti á Íslandsmeistaramóti barþjóna 2026, þar sem hann keppti fyrir OTO með drykkinn „Atomic Joe“. Þar hlaut hann einnig viðurkenningu fyrir fagleg vinnubrögð. Nú bætist alþjóðlegur sigur við þann árangur.
Lotus Prestige Cup fór fram 20. október í Macau Fisherman’s Wharf Convention and Exhibition Center. Keppnin er sjálfstæð og aðskilin frá World Cocktail Championship (WCC), þótt báðar séu hluti af sömu alþjóðlegu viðburðavikunni.
Leó keppir á heimsmeistaramótinu á morgun

Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson, sem sigraði í sínum flokki í Lotus Prestige Cup í Macau, ásamt Leó Snæfeld Pálssyni, Íslandsmeistara barþjóna, sem keppir á heimsmeistaramótinu 21. október.
Íslenski hópurinn hefur því þegar ástæðu til að fagna, en fram undan er þátttaka Íslandsmeistarans Leós Snæfeld Pálssonar á heimsmeistaramóti barþjóna. Leó keppir með kaffikokteilinn „Button-Down“ miðvikudaginn 21. október. Kaffikokteilaflokkurinn er á dagskrá kl. 07:00–08:00 að íslenskum tíma, samkvæmt dagskrá skipuleggjenda.
Barþjónaklúbbur Íslands á níu manna hóp í Macau. Viðburðavikan stendur yfir 19.–24. október og fer fram á 75 ára afmælisári IBA. Auk keppnanna er boðið upp á fræðslu og tækifæri til að efla alþjóðleg tengsl barþjóna.
Fylgjast má með íslenska hópnum á Instagram Barþjónaklúbbs Íslands, @bartendericeland. Nánari upplýsingar eru á viðburðasíðu IBA.
Myndir: Barþkónaklúbbur Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð








