Vín, drykkir og keppni
Trump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
Bandaríski forsetinn Donald Trump og fyrirtæki tengd vörumerki hans eiga nú í vörumerkjadeilu við víngerð í Kaliforníu sem hefur sérhæft sig í vínum með pólitískum skírskotunum.
Það er víngerðin Republican Red Winery í Monterey í Kaliforníu sem stendur í deilunni, en eigandi hennar, Paul Johnson, hefur um nokkurt skeið selt vín sem vísa beint til Trump og slagorða hans. Þar á meðal eru Chardonnay-vínin „Drill Baby Drill“ og „Drain the Swamp“, auk rauðvínsins „Epic Fury“, sem vísar til hernaðaraðgerða Bandaríkjanna gegn Íran.
Á fréttavefnum Fox News kemur fram að nú hafa þó þrjú fyrirtæki tengd Trump, DTTM Operations, Trump Wine Marks LLC og CIC Operations, farið fram á að bandaríska einkaleyfa- og vörumerkjastofan felli niður vörumerki vínsins „45-47 Republican Red Special Edition“.
Ástæðan er svokölluð „45-47“ vörumerking, sem vísar til þess að Trump gegndi embætti sem 45. og 47. forseti Bandaríkjanna. Sú merking hefur síðustu misseri verið notuð á fjölbreyttum MAGA-varningi og vilja lögmenn fyrirtækjanna verja notkun hennar.
Í kærunni kemur fram að nafn vínsins geti skapað rugling og gefið til kynna að Trump eða fyrirtæki hans styðji vöruna opinberlega.
Á heimasíðu Republican Red Winery er vínið kynnt sem „sterk vísun í seiglu, arfleifð og endurkomu leiðtoga sem hætti aldrei að berjast fyrir Ameríku“. Þar segir einnig að vínið heiðri Donald Trump sem 45. og 47. forseta Bandaríkjanna.
Johnson, sem er annarrar kynslóðar vínræktandi, segir jafnframt að vínin séu framleidd með áherslu á gæði og föðurlandsást. Þá hafi hann meiri trú á „tengingu í gegnum vín, en átök vegna kvartana“.
Hann hefur einnig sagt að pólitískar umræður eigi heima við matarborðið og eigi ekki að vera tabú.
Víngerðin selur vín sín eingöngu á netinu. Samkvæmt Johnson er það ekki af eigin vilja, heldur vegna þess að verslanir vilji ekki taka vörurnar í sölu vegna nafns fyrirtækisins.
Í viðtali við íhaldssama fjölmiðilinn Newsmax sagði hann að smásalar óttuðust viðbrögð neytenda ef þeir seldu vín frá fyrirtæki með orðið „Republican“ í nafninu.
Johnson hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um sjálfa vörumerkjadeiluna.
Trump hefur áður komið að markaðssetningu drykkja. Í desember síðastliðnum voru pantanir opnaðar á ný á Trump Vodka, bandarísku vodkamerki sem var upphaflega sett á markað fyrir um 14 árum undir slagorðinu „The Great American Spirit“. Framleiðslu þess var hætt árið 2011 eftir slaka sölu og lagadeilu við fyrrverandi samstarfsaðila.
Myndir: republicanred.com
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Frétt4 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn3 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu





