Vín, drykkir og keppni
Diageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns

Höfuðstöðvar Diageo í London.
Guinness er eitt stærsta og þekktasta vörumerki Diageo, sem varð til við samruna Guinness PLC og Grand Metropolitan árið 1997.
Mynd: Mkorukmez, Wikimedia Commons, CC BY-SA
Diageo, breskt alþjóðlegt áfengis- og drykkjarvörufyrirtæki og eitt það stærsta í heimi, hefur leitað til dómstóla á Indlandi vegna banns Matvælaöryggis- og staðlastofnunar Indlands, FSSAI, við sölu á romminu McDowell’s No. 1 Celebration Matured XXX Rum.
Rommið er framleitt í Maharashtra-ríki af United Spirits, dótturfélagi Diageo á Indlandi og einu stærsta áfengisfyrirtæki landsins.
United Spirits heldur því fram fyrir dómstól í Mumbai að embættismaðurinn sem gaf út sölubannið hafi ekki haft lagaheimild til þess. Þá telur fyrirtækið að ekki hafi verið farið eftir lögbundnu ferli þar sem niðurstaða matvælafræðings hafi verið notuð til að stöðva sölu vörunnar.
Deilan snýst meðal annars um notkun og merkingar gervibragðefna í áfengum drykkjum. Bannið var sett á meðan FSSAI vann að samráði við áfengisframleiðendur um hvernig slík bragðefni skuli skilgreind og merkt.
Samkvæmt dómsgögnum sem Reuters hefur undir höndum telur United Spirits að ótímabært og ósanngjarnt sé að halda banninu til streitu meðan stofnunin sjálf hafi málið enn til skoðunar. Bannið valdi fyrirtækinu jafnframt verulegu viðskiptalegu tjóni.
Diageo hafnar því að hafa brotið indversk lög og segist ávallt starfa í samræmi við gildandi reglur.
Dómstóllinn felldi ekki úrskurð við fyrstu fyrirtöku málsins og stendur sölubannið því enn. Indverskum stjórnvöldum hefur verið gert að skila greinargerð fyrir 19. ágúst, en málið verður tekið fyrir að nýju í kjölfarið.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn4 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn6 dagar síðanLíður að jólum



