Vín, drykkir og keppni
Páfinn skálar fyrir fyrstu vínflöskunum úr eigin víngarði

Garðarnir í Borgo Laudato Si eru nýttir til ræktunar á meðal annars grænmeti, kryddjurtum og vínþrúgum.
Fyrstu 5.000 vínflöskurnar hafa nú verið framleiddar úr víngarði páfans í Castel Gandolfo á Ítalíu. Víngarðurinn er hluti af Borgo Laudato Si, sjálfbærniverkefni sem opnað var á síðasta ári innan sumarseturs páfa.
Það var Leó páfi XIV sem heimsótti víngarðinn á dögunum til að blessa fyrstu uppskeruna og skálaði fyrir þessum áfanga með glasi af rauðvíni. Víngarðurinn er tveir hektarar að stærð og allur gróðursettur með Cabernet Sauvignon þrúgum.
Markmiðið er að framleiðslan aukist á næstu árum og geti náð allt að 20.000 vínflöskum á ári. Verkefnið byggir á lífrænni ræktun og náttúruvænn landbúnaður, þar sem háþróuð vökvunarkerfi sjá til þess að aðeins sé notað það vatn sem þörf er á.

Leó páfi XIV skálar fyrir fyrstu vínflöskunum sem framleiddar hafa verið úr víngarði Borgo Laudato Si í Castel Gandolfo.
Um 8.000 vínviðarplöntur eru ræktaðar af flóttafólki, ungmennum sem hafa komið til landsins án forsjáraðila og fyrrverandi föngum. Verkefnið er jafnframt ætlað að veita yfir 1.000 einstaklingum árlega þjálfun í sjálfbærum landbúnaði og tengdum störfum.
Víngerðin er í höndum ítalska vínfræðingsins Riccardo Cotarella, eins þekktasta ráðgjafa Ítalíu á sviði víngerðar. Vínið er látið eldast í eikartunnum og verður selt innan Vatíkansins auk þess sem gestum Borgo Laudato Si gefst kostur á að smakka það.
Við opnun verkefnisins lagði páfinn áherslu á mikilvægi þess að bera ábyrgð á náttúrunni og skapa samfélag sem styður við sjálfbærni og hjálpar þeim sem standa höllum fæti.
Myndir: vaticannews.va
Tengt efni:
Vínmarkaður Vatíkansins: Dularfullur heimur trúar, tengsla og tækifæra
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Frétt6 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Markaðurinn3 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt1 dagur síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg



