Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Þrír nýir veitingastaðir opnaðir á Glerártorgi

Birting:

þann

Þrír nýir veitingastaðir opnaðir á Glerártorgi

Á myndinni eru, frá vinstri, Leví Ellertsen, rekstrarstjóri The Codfather á Norðurlandi, Hlynur Friðfinnsson, framkvæmdastjóri The Codfather, og Andri Björn Jónsson, yfirkokkur fyrirtækisins.

Þrír nýir staðir hafa opnað á Glerártorgi á Akureyri að undanförnu. Tveir þeirra, The Codfather og Smash Amigos, hafa bæst við veitingaflóruna í Iðunni Mathöll, en kaffihúsið Coffee Corner hefur einnig opnað í verslunarmiðstöðinni.

„Tveir nýir staðir hafa opnað í Iðunn Mathöll, The Codfather og Smash Amigos, og eru staðirnir þar með orðnir fimm,“

segir í tilkynningu frá Glerártorgi.

Fiskréttir og smashborgarar í Iðunni Mathöll

The Codfather sérhæfir sig í fiskréttum og býður meðal annars upp á fisk og franskar, fisk- og humartacos og humarlokur. Staðurinn hóf starfsemi sína sem matarvagn á Selfossi árið 2025 og hefur að sögn Glerártorgs fengið mjög góðar viðtökur.

Smash Amigos opnaði í Iðunni Mathöll í september síðastliðnum. Þar eru smashborgarar í aðalhlutverki, en einnig er boðið upp á franskt tacos. Samkvæmt upplýsingum frá Glerártorgi hafa viðtökurnar verið framar vonum.

Nýtt kaffihús í verslunarmiðstöðinni

Í hinum enda Glerártorgs hefur kaffihúsið Coffee Corner opnað, á milli Apótekarans og Ellingsen.

Á kaffihúsinu er boðið upp á fjölbreytt úrval kaffidrykkja, kökur og samlokur.

Með opnun þessara þriggja staða hefur úrval veitinga á Glerártorgi aukist og gestir hafa nú fleiri valkosti, hvort sem þeir vilja fá sér hádegisverð, hamborgara eða kaffibolla með meðlæti.

Mynd: Glerártorg.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið