Keppni
Mikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
Við upphaf haustannar hófu fimm nemendur nám í framreiðslu á matvælabraut VMA og er þetta í annað skiptið sem framreiðsla er kennd til sveinsprófs í VMA. Fyrsti nemendahópurinn hóf nám haustið 2022 og brautskráðist vorið 2023. Stefnt er að því að framreiðslunemarnir sem nú stunda nám brautskráist næsta vor.
Ekki þarf að hafa um það mörg orð að það er og hefur lengi verið mikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum (þjónum) á Íslandi. Því er mikilvægt að VMA leggi nú sín lóð á vogarskálarnar til þess að fjölga fagmenntuðu fólki í þessari stétt. Þegar litið var inn í kennslustund hjá framreiðslunemunum og Hebu Finnsdóttur kennara þeirra voru þeir að spreyta sig á einu og öðru sem framreiðslumenn sérhæfa sig í.
Vinna saman á Múlabergi
Fjórir af fimm framreiðslunemunum voru í kennslustundinni og svo skemmtilega vill til að ekki aðeins eru þeir saman í náminu heldur vinna þeir einnig saman á veitingastaðnum Múlabergi á Akureyri. Með öðrum orðum; allir þessir nemar hafa unnið í faginu og kunna því eitt og annað en í náminu gefst tækifæri til þess að fara dýpra í hlutina og skerpa á hinu í starfi framreiðslumanna.
Þó svo að í fljótu bragði kunni að sýnast einfalt mál að þjóna til borðs, vinna á bar o.s.frv. er það alls ekki svo. Fagmenntaðir framreiðslumenn læra og tileinka sér ákveðin vinnubrögð og fylgja þeim í hvívetna í daglegu starfi sínu.
Á vorönn halda framreiðslunemarnir áfram í námi sínu í VMA og þá er einnig á dagskránni að verði 3. bekkur í matreiðslu, þ.e. nemendur á lokaspretti sínum fyrir sveinspróf í matreiðslu. Það er óskastaða að geta kennt bæði 3. bekk í matreiðslu og framreiðslu á sama tíma.
Sérstaklega passar þetta vel saman þegar settar eru upp æfingar í hvort sem er heitum eða köldum réttum og framreiðslunemarnir undirbúa veisluborðin og bera matinn fram eftir kúnstarinnar reglum.
En hver eru inntökuskilyrðin til þess að læra framreiðslu? Hér eru upplýsingar um námið á heimasíðu VMA. Þar kemur m.a. fram að nemendur þurfi að hafa lokið ákveðnum áföngum grunnnáms matvælagreina og vera á samningi í greininni til að hefja nám í framreiðslu.
Þrír framreiðslunemar stefna á Norrænu nemakeppnina
Eins og fram hefur komið á heimasíðu VMA verður Norræna nemakeppnin í framreiðslu og matreiðslu haldin í VMA í apríl 2027. Núna í október verður undankeppni hér á landi fyrir Norrænu nemakeppnina og þá fæst úr því skorið hverjir verða fulltrúar Íslands í keppninni.
Þrír framreiðslunemar sem nú stunda nám í VMA taka þátt í undankeppninni. Það er því æft stíft þessa dagana. Að sögn Hebu Finnsdóttur kennara er nemakeppnin á margan hátt ekki ósvipuð sveinsprófinu sem framreiðslunemar þurfa að fara í að námi loknu.
Því er þátttakan í undankeppninni Norrænu nemakeppninnar ljómandi góður undirbúningur fyrir sveinsprófið á næsta ári.
Mynd: vma.is
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn6 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni7 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð







