Nemendur & nemakeppni
Fagmenn úr veitingageiranum hrósuðu matreiðslunemum VMA í hástert – Myndir
Það er ekki annað hægt segja en að nemendur í 2. bekk í matreiðslu, sem hafa stundað nám sitt af kappi núna á vorönn, hafi klárað veturinn með glæsibrag. Boðið var til margrétta kvöldverðar í Þrúðvangi, sal matvælabrautar, síðastliðið miðvikudagskvöld þar sem nemendur buðu sínu fólki að koma og njóta matarins. Einnig voru í kvöldverðinum matreiðslumeistarar á Akureyri og einnig af suðvesturhorninu, fulltrúar birgja og samstarfsfyrirtækja matvælabrautar, skólameistari VMA og fleiri góðir gestir.
Í vetur hafa sjö nemendur stundað nám í 2. bekk í matreiðslu. Allir starfa þeir á veitingahúsum og eru þar á námssamningum. Til þess að geta farið í sveinspróf í matreiðslu þurfa þeir hins vegar að ljúka 3. bekknum og segir Benedikt Barðason skólameistari VMA að eindregið sé stefnt að því að þessi öflugi nemendahópur geti lokið við þriðja bekkinn á vorönn 2027 og fari þá í beinu framhaldi í sveinspróf og fái þannig réttindi sem matreiðslumenn.
Þeir gestir sem nutu matarins lýstu allir mikilli ánægju og aðdáun á gæði matarins hjá nemunum og voru sammála um að vænta mætti mikils af þessum matreiðslumönnum í framtíðinni.
Meðal þeirra sem var í matarveislunni var Þórir Erlingsson, forsti Klúbbs matreiðslumeistara og framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins. Hann lýsti mikilli ánægju með hvernig staðið væri að málum við menntun matreiðslunemanna í VMA og hældi þeim fyrir frábæran mat. Þá upplýsti hann að á næsta ári, nánar tiltekið í apríl 2027, yrði Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta skipti. Þessi keppni er fastur liður og þá koma saman nemendur í matreiðslu og framreiðslu frá öllum Norðurlöndunum og keppa sín í milli. Í hverju landi er forkeppni fyrir aðalkeppnina. Nemakeppnin í ár var haldin í Svíþjóð fyrir tæpum mánuði.
Norræna nemakeppnin á Akureyri eftir tæpt ár verður stór viðburður og er ljóst að hluti hennar verður í VMA, í húsakynnum matvælabrautar.
Benedikt Barðason skólameistari þakkaði matreiðslunemunum og öllum sem hafi haldið utan um nám þeirra í vetur fyrir afar gott starf. Einnig þakkaði hann birgjum og fyrirtækjum í veitingageiranum fyrir sérlega ánægjulegt samstarf og stuðning við námið í VMA. Þessi stuðningur og samvinna skipti sköpum fyrir skólann.
Nauðsynlegt væri að geta haldið úti slíkri menntun í VMA, ekki síður en á höfuðborgarsvæðinu, og lagt þannig lóð á vogarskálarnar að efla fagmenntun fólks í veitingageiranum á norðurlandinu. Einnig þakkaði hann Klúbbi matreiðslumeistara fyrir þann stuðning og áhuga sem hann sýndi á náminu í VMA og þá ákvörðun að Norræna nemakeppnin verði á Akureyri á næsta ári.
Myndir: vma.is / Hilmar Friðjónsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn6 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir er Vínþjónn ársins 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanSkyrunnendur fá tvær nýjar ástæður til að gleðjast
-
Frétt5 dagar síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn3 dagar síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu
-
Markaðurinn2 dagar síðanDineout kynnir nýja klippikortalausn fyrir veitingastaði
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt vörumeri hjá Nathan: Musgraves Excellence














