Keppni
Brons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
Bæði lið Íslands í norrænu nemakeppninni, sem haldin var í Grythyttan í Svíþjóð, komust á pall að þessu sinni en keppendur Íslands komu vel undirbúnir til leiks, sem skilaði sér í því að bæði liðin í framreiðslu og matreiðslu unnu til bronsverðlauna.
Keppnin var gríðarlega hörð í þetta skiptið en Finnar sigruðu í framreiðslu og Danir sigruðu í matreiðslu.
Keppendur fyrir íslandshönd voru Aron Fannar Þrastarson og Hákon Orri Stefánsson í matreiðslu en Aron starfar hjá Nomy veisluþjónustu og Lóla Restaurant en Hákon starfar hjá Fröken Reykjavík, báðir stefna á að klára sveinspróf í matreiðslu nú í maí.
Í framreiðslu kepptu Árný Lind Berglindardóttir, en hún starfar á veitingahúsinu Kol, og Freyja Dröfn Bjarnadóttir, sem starfar á veitingahúsinu OTO en þær eins og strákarnir stefna á að klára sveinspróf nú í maí mánuði.
Keppnin í ár var sú 45. í röðinni en Ísland hefur tekið þátt síðan 1986, margir af bestu matreiðslumeisturum Norðurlandanna hafa hafið sinn feril í þessari keppni. Keppendur koma frá norðurlöndunum fimm en öll löndin senda tvo framreiðslunema og tvo matreiðslunema studda af liðstjórum. Forkeppni á Íslandi fór fram í Hótel og Matvælaskólanum í Kópavogi í nóvember síðastliðnum.
Keppnin á Íslandi er haldin á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar og Matvís en Klúbbur matreiðslumeistara sér um framkvæmdina fyrir þeirra hönd.
Undir þema ársins, framtíðargestrisni, gerðu matreiðslunemarnir nútímalega túlkun á kálbögglum og sömdu fjórganga matseðil byggðan á leyndum hráefnum úr mystery basket.
Framreiðslunemarnir kepptu í þjónustu, þar sem fram var borin fimm rétta máltíð ásamt vínpörun, þar sem eftirétturinn var eldsteiktur fram í sal.
Sigurvegarar
Framreiðsla
1. sæti — Finnland
2. sæti — Danmörk
3. sæti — Ísland
Matreiðsla
1. sæti — Danmörk
2. sæti — Svíþjóð
3. sæti — Ísland
Myndband:
Myndir: Mummi Lú
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt2 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Frétt4 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Markaðurinn6 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHandverksbjór og matarveisla á Hólum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 klukkustundir síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna




