Viðtöl, örfréttir & frumraun
Góðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal

Hamfaraflóðin í Nepal hafa lagt heimili í rúst og fjölmargar fjölskyldur hafa misst eigur sínar og ástvini.
Mynd: Pixabay
Nepali Association of Iceland og World Chefs Without Borders standa fyrir góðgerðarhlaðborði laugardaginn 12. september frá kl. 12:00 til 15:00. Hlaðborðið verður haldið í húsnæði Mjólkursamsölunnar að Bitruhálsi 1 í Reykjavík.
Viðburðurinn er haldinn til stuðnings fjölskyldum sem hafa misst heimili sín, eigur og ástvini í hamfaraflóðum í Nepal. Allur ágóði af hlaðborðinu rennur til hjálparstarfs fyrir þau sem nú þurfa sárlega á aðstoð að halda.
Klúbbur matreiðslumeistara hvetur félagsmenn sína og aðra velunnara til að mæta, njóta góðs matar og leggja um leið mikilvægu málefni lið.
Aðgangseyrir er 4.990 krónur fyrir fullorðna og 2.490 krónur fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára.
Með viðburðinum gefst fólki tækifæri til að koma saman, sýna samstöðu og styðja fjölskyldur í Nepal sem glíma við afleiðingar hamfaranna.
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði



