Markaðurinn
Vinnustofa um vernduð afurðaheiti haldin í október
Vinnustofan er haldin af verkefninu GIFT í Borgartúni 35 í samstarfi við SAFL/SI kl. 9.-14. og hefst með morgunkaffi og meðlæti. Óska þess að gestir skrái sig en þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.
Meðfylgjandi dagskrá vinnustofu13. okt, auk annarar dagskrár fyrir erlenda gesti en fyrirlestrar fara fram á ensku. Meðal fyrirlesara eru íslenska fagfólkið Gísli Matt, Alba E.H. Hough og Hafliði Halldórsson
Vernduð afurðaheiti eru lítið nýtt verkfæri á norðurslóðum í samanburði við önnur svæði Evrópu, þekking á tækifærum þess er óplægður akur hérlendis. Vernduð afurðaheiti (e. Geographical Indications) er upprunaverndar og gæðakerfi sem er rekið af ESB fyrir matvörur, drykki, náttúruleg hráefni og handverk.
Lönd utan ESB eins og Ísland nota kerfið í gegnum samninga en kerfið er í notkun í öllum heimsálfum.
Markmið verkefnisins er fræðsla um kerfi verndaðra afurðaheita, vekja athygli í notkun þess fyrir nýja umsækjendur, sem og aðra hagaðila s.s. í ferðaþjónustu og þeirra sem sinna kerfinu í íslenskri stjórnsýslu.
Fleiri íslenskir framleiðendur eiga fullt erindi til að nýta sér þetta öfluga verkfæri til að styrkja stöðu sína. Með því að auka vitund og aðgengi að upprunaverndarkerfinu er hægt að vekja athygli á einstökum uppruna og gæðum afurða, efla verðmætasköpun í dreifbýli, styðja við svæðisbundna sjálfbærni og menningararf.
Mikilvægi fyrir veitingageira og ferðaþjónustu
Margir en alls ekki allir vita að skráðar afurðir auka virði ferðaþjónustu og veitingahúsa sem nýta þær og sögurnar til að marka sinni þjónustu og staðsetningu sérstöðu. Undir verndina falla t.d. frægar evrópskar vörur eins og Parma Ham, Feta ostur, Kampavín o.fl. og við þekkjum öll notkun á slíkum hráefnum á veitingahúsum og í verslun.
Íslenskt lambakjöt (e. Icelandic Lamb) er fyrsta og enn sem komið er eina íslenska afurðin með gagnkvæma skráningu í ESB. Íslenska skráningu hafa einnig íslensk lopapeysa, íslenskt gin og íslenskt viskí.
-
Keppni7 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanLíður að jólum
-
Pistlar19 klukkustundir síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




