Viðtöl, örfréttir & frumraun
Omegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
Það verður sannkallaður danskur bragur á SKÁL! við Njálsgötu í Reykjavík dagana 5. og 6. október þegar gestir frá Omegn & Venner í Kaupmannahöfn taka höndum saman við teymi staðarins.
Omegn & Venner er staðsett í Torvehallerne í Kaupmannahöfn og hefur skapað sér nafn fyrir matargerð þar sem gott hráefni er í forgrunni. Mikil áhersla er lögð á samstarf við smærri framleiðendur og einfaldan en vandaðan mat.
Að Omegn & Venner standa Denny og Sarah ásamt yfirkokknum Mariu Lesi.
- Denny
- Sarah
Heimsóknin er hluti af viðburðaröð SKÁL! þar sem erlendir kokkar og veitingamenn koma til landsins og vinna með teyminu að sérstökum kvöldum.
Gísli Matt, einn eigenda SKÁL!, segir að lengi hafi staðið til að gera meira af viðburðum af þessu tagi.
„Okkur hefur lengi langað að gera meira af svona kvöldum á SKÁL! og fá hingað fólk sem við sjálf höfum áhuga á og finnst vera að gera spennandi hluti.
Omegn & Venner passar sérstaklega vel við okkur. Þau leggja mikla áherslu á gott hráefni, framleiðendur og einfaldan en virkilega góðan mat,“
segir Gísli.
Fimm rétta matseðill
Teymin tvö hafa sett saman sérstakan fimm rétta matseðil undir stjórn Thomas Lorentzen, yfirkokks SKÁL!, þar sem íslenskt hráefni fær að njóta sín.
Meðal þess sem verður á boðstólum eru grilluð lambahjörtu á teini með reyktu eggaldini og stökkum eldpipar. Einnig verður boðið upp á handtínda hörpuskel með grænkáli og XO-sósu.
Saltbakaður sólkoli verður borinn fram með nýjum íslenskum kartöflum, graslauk og kræklingasósu.
Gestir fá einnig að smakka einn af þekktari réttum Omegn & Venner, kjúklingalifrarparfait með pikkluðum rabarbara og ristuðu mjólkurbrauði.
Í eftirrétt verða íslensk aðalbláber með bláberjakaramellu og ís.
Viðburðurinn fer fram á SKÁL! við Njálsgötu 1 dagana 5. og 6. október. Tekið verður á móti gestum á tveimur tímum hvort kvöld og kostar fimm rétta matseðillinn 14.900 krónur á mann.
Myndir: aðsendar
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn6 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni7 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni7 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni2 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA









