Keppni
Hrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
- Hrafnkell Ingi fagnaði sigrinum innilega.
Stokkhólmur varð miðpunktur norrænnar kokteilmenningar þegar Bartenders’ Choice Awards 2026 fór fram í gær, 16. mars. Yfir 600 gestir sóttu hátíðina.
Íslendingar létu verulega að sér kveða og hlutu verðlaun í fjölda flokka. Amma Don var valinn besti kokteilbar landsins og hlaut einnig verðlaun fyrir besta kokteilseðilinn. Lóla var valinn besti nýi kokteilbarinn og Kaldi Bar fékk viðurkenningu fyrir bestu stemninguna.
Hrafnkell Ingi Gissurarson var valinn besti barþjónninn, Klakavinnslan fékk viðurkenningu fyrir framlag sitt til bargeirans og Skál! var valinn besti veitingastaðurinn. Liv Sunneva Einarsdóttir var valin rísandi stjarna og Tipsy hlaut val almennings.
Árangurinn undirstrikar sterka stöðu Íslands í norrænni kokteilmenningu þar sem sköpunargleði og fagmennska fara saman og áhrifin ná sífellt lengra út fyrir landsteinana.
Hægt er að skoða alla vinningshafa með því að smella hér.
Með fylgja myndir frá verðlaunahátíðinni af keppendum frá Norðurlöndunum.
Myndir: Bartenders’ Choice Awards / Ebba Lange
-
Keppni7 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt3 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“

























