Markaðurinn
Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
Um 700 gestir skráðu sig á viðburð Nathan sem fram fór í höfuðstöðvum félagsins þann 8. október þar sem viðskiptavinum, samstarfsaðilum og öðrum góðum gestum var boðið að kynnast starfsemi félagsins, vörumerkjum og framtíðarsýn. Mæting var afar góð og markaði viðburðurinn upphaf nýs kafla í vegferð félagsins eftir umfangsmikla sameiningu og endurmörkun á síðasta ári.
Viðburðurinn var haldinn tæpu ári eftir að sameining 1912, Ekrunnar og Nathan & Olsen undir merkjum Nathan átti sér stað. Frá þeim tíma hefur verið unnið markvisst að því að sameina starfsemina undir einu vörumerki og skapa sterkari heild fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila félagsins.
Gestir fengu tækifæri til að fara á milli fjölbreyttra stöðva víðs vegar um húsnæðið þar sem kynnt voru þau fjölmörgu vörumerki og vöruflokkar sem Nathan flytur inn, markaðssetur og dreifir. Tilgangur viðburðarins var að sýna breidd fyrirtækisins og þá þekkingu, reynslu og þjónustu sem býr að baki starfseminni.
Viðburðurinn markaði jafnframt tímamót í þróun Nathan. Eftir sameiningu og endurmörkun síðasta árs beinist áherslan nú að nýjum tækifærum og áframhaldandi sókn. Nathan vinnur markvisst að því að þróa vöruframboð sitt, bæta við nýjum vöruflokkum og finna leiðir til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. Með sterkum grunni og breiðu vöruframboði er markmiðið að dýpka samstarf við viðskiptavini og stækka saman á komandi árum.
Fyrirtækjasvið Nathan stillti fram brotabroti af þeirra fjölbreytta vöruúrvali og bauð svo upp á smakk á nokkrum nýjum vörum:
• Smakk á okkar nýjustu bragðólífuolíum frá Pons með nýbökuðu súrdegisbaguette. Kynntu þér frábæru ólífuolíurnar frá Pons hér.
• Nýsjálenskt lambafille, marinerað í Knorr timian krydd paste, Pons ólífuolíu og ferskum hvítlauk. Eftir eldun var kjötið gljáað með Kikkoman Ponzu lemon, sesamolíu, Pons ólífuolíu og engifersafa. Sjáðu uppskriftina hér.
• Debic ostakaka á tvenna vegu, annars vegar með hindberjapúrru frá Boiron og hins vegar með yuzu súkkulaði frá Valrhona. Báðar týpurnar voru toppaðar með heimagerðu hafracrumble og bökuðu Ivoire súkkulaði frá Valrhona sem naut sín vel. Kíktu á uppskriftina hér.
Fjörbarinn hristi í óáfenga kokteila frá Lyre’s og bauð upp á óáfengt freyðivín frá Oddbird. Crosta-Mollica hafði varla undan við að baka pizzur ofan í gesti, og einnig voru skemmtilegar framtillingar á vörumerkjum á borð við Sproud, Fritz-Kola, Ella’s Kitchen, Libero, Neutral, Til hamingju, QNT, Cheerios og Cocoa Puffs. Þá voru spennandi nýjungar frá Emmessís, BioTex og Vaseline kynntar til leiks á markað.
Boxmagasin stóð fyrir förðunarkennslu og lukkuhjóli þar sem var til mikils að vinna. Í lok heimsóknar fengu allir gestir veglegan gjafapoka með vörum frá Hellmann’s, Oddbird, Sun-Maid, Tunnocks, Castello, Rynkeby og fleiri frábærum vörumerkjum.
Starfsfólk Nathan þakkar öllum þeim fjölmörgu viðskiptavinum og samstarfsaðilum sem sáu sér fært að koma og fagna þessum tímamótum með sér. Við hlökkum til að stækka með ykkur.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun16 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Frétt7 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Keppni18 klukkustundir síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum




























