Frétt
Endurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann
Veitingastaðurinn Fröken Selfoss hefur nú opnað dyr sínar á ný, tæpum tveimur mánuðum eftir að mikill eldur braust út í húsnæðinu þann 29. maí síðastliðinn.
Eins og greint hefur verið frá á veitingageirinn.is varð bruninn til þess að starfsemi staðarins stöðvaðist um tíma og ljóst var strax að umfang tjónsins var mikið.
Nú hafa eigendur staðarins, Guðný Sif Jóhannsdóttir og Árni Bergþór Hafdal Bjarnason, lokið umfangsmikilli enduruppbyggingu og tekið á móti gestum á ný. Að sögn þeirra var tjónið meira en margir gerðu sér grein fyrir og telja þau að fjölmiðlar hafi dregið úr umfangi brunans í umfjöllun sinni, að því er fram kemur á mbl.is.
Í eldsvoðanum sprakk vatnslögn með þeim afleiðingum að vatn flæddi um öll gólf veitingastaðarins. Þá sprungu einnig litlir gaskútar í brunanum. Samkvæmt eigendunum varð altjón á staðnum og því þurfti að endurbyggja veitingastaðinn nánast frá grunni.
Fröken Selfoss hefur nú verið endurinnréttaður með nokkrum smávægilegum breytingum frá því sem áður var og er reksturinn hafinn á ný eftir annasamt endurreisnarferli.
Myndband
Meðfylgjandi myndband sýnir slökkviliðið við störf þegar bruninn geisaði, ástand veitingastaðarins í kjölfarið, viðtal við eigendur Fröken Selfoss og þá umfangsmiklu enduruppbyggingu sem hefur skilað staðnum aftur til lífsins.
Mynd: Skjáskot úr myndbandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Markaðurinn6 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn5 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt2 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Keppni6 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn5 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni5 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september




