Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
SHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur

Frá heimsókn sendiherra Japans á Íslandi á SHIRO við Pósthússtræti 17 í Reykjavík.
Mynd: Facebook / Embassy of Japan in Iceland
Þrír nýir japanskir staðir, SHIRO, NO.17 og ĒN, verða opnaðir við Pósthússtræti 17 í miðborg Reykjavíkur í byrjun október. Sameiginleg opnunarhátíð verður haldin 1. október en staðirnir opna formlega fyrir almenningi daginn eftir.
Að því er fram kemur á mbl.is eiga staðirnir það sameiginlegt að leggja áherslu á japanska matar- og drykkjarmenningu, vandað handverk og fyrsta flokks hráefni.
SHIRO verður á tveimur hæðum og býður meðal annars upp á yakiniku, þar sem gestir grilla sjálfir við borðið, washoku-rétti og teppanyaki-matargerð. Yfir eldhúsinu verður kokkurinn Mitsutake Watanabe, sem er meistari japanskrar matargerðar og sérstakur sendiherra japanskrar matargerðar.

Frá SHIRO við Pósthússtræti 17, þar sem staðurinn hefur verið tekinn í gegn og endurgerður.
Mynd: Instagram / shiro_reykjavik
Á jarðhæðinni verður NO.17 með japanskan mat með áhrifum frá Singapúr til að taka með, en í kjallaranum opnar ĒN, kokteilbar þar sem japönsk bar- og kokteilmenning mætir íslenskum hráefnum.
Irene Chua, stofnandi staðanna þriggja, segir mikinn áhuga vera á ósvikinni japanskri matargerð hér á landi og að markmiðið sé að bæta asíska tónum við fjölbreytta veitingamenningu Reykjavíkur.
Nánar má lesa um SHIRO, NO.17 og ĒN á mbl.is.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn1 dagur síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun8 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn1 dagur síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði



