Markaðurinn
Rummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
Ítalska Rummo-pastað er nú komið á vikulegan matseðil leik- og grunnskóla í Hafnarfirði. Matarstund, sem sér um skólamáltíðirnar, hefur tekið í notkun ítölsk hráefni frá Olifa á Íslandi, meðal annars pasta, jómfrúarolíur og tómatvörur frá Puglia-héraði á Ítalíu.
Samstarfið er liður í áframhaldandi þróun matseðla hjá Matarstund, þar sem áhersla er lögð á fjölbreyttar og næringarríkar máltíðir úr vönduðu hráefni.
Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari leiðir þróun matseðla og gæðamála hjá Matarstund. Hann segir mikilvægt að pasta haldi lögun og áferð þegar eldað er fyrir stóran hóp. Rummo-pasta gefi góðan grunn að einföldum og bragðgóðum réttum sem henti skólamötuneytum.
Danól annast sölu og dreifingu til fageldhúsa
Danól hefur tekið að sér sölu og dreifingu á vörum Olifa á Íslandi til íslenskra fageldhúsa, meðal annars veitingastaða, hótela og mötuneyta.
Með samstarfinu verða vörurnar aðgengilegar fagfólki í veitinga- og mötuneytageiranum í gegnum dreifikerfi Danól.
-
Markaðurinn6 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn6 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn6 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni2 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni2 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn3 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag




