Markaðurinn
Nýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast
Lavazza hefur bætt nýrri tegund við hina vinsælu Qualità Oro kaffilínu með tilkomu Qualità Oro Dark Roast. Nýja kaffið er þróað fyrir þá sem kjósa kraftmeira kaffi með ríkulegu bragði og djúpum karakter, án þess að slakað sé á þeim gæðum sem Qualità Oro er þekkt fyrir.
Qualità Oro Dark Roast er unnið úr úrvals Arabica-kaffibaunum sem eru dökkristaðar til að draga fram dýpri og ákafari bragðtóna. Útkoman er kaffi með ríkum ilm og góðu jafnvægi. Kaffið er einnig með mikilli fyllingu og langvarandi eftirbragði.
Kaffið hentar vel í síukaffivélar, French Press og Moka-könnur. Með styrkleika upp á 8 af 10 er það góður kostur fyrir þá sem vilja kraftmeiri kaffibolla, hvort sem um er að ræða fyrsta bollann á morgnana eða notalega kaffistund síðar um daginn.
Í tilefni af komu Qualità Oro Dark Roast býðst kaffið með 25% afslætti í vefverslun Danól í takmarkaðan tíma.
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember




