Markaðurinn
Olifa og Danól hefja samstarf um ítölsk gæðahráefni fyrir fageldhús

Emil Hallfreðsson og Ása María Reginsdóttir, eigendur Olifa á Íslandi, ásamt Maríu Jónu Samúelsdóttur, framkvæmdastjóra Danól, og Hafsteini Snæland Grétarssyni, sölu- og markaðsstjóra Danól.
Vörur Olifa, þar á meðal hinar margrómuðu jómfrúarolíur, geysivinsæla Rummo pasta og önnur sérvalin ítölsk hráefni, verða nú aðgengilegar veitingastöðum og stóreldhúsum um allt land í gegnum Danól.
Olifa á Íslandi og Danól hafa undirritað samstarfssamning um sölu og dreifingu á vörum Olifa til íslenskra fageldhúsa. Samstarfið markar nýjan kafla í aðgengi veitingastaða, hótela, mötuneyta og annarra aðila á Horeca markaði að sérvöldum ítölskum gæðahráefnum sem landsmenn þekkja vel.
Olifa hefur á undanförnum árum byggt upp sterkt vörumerki og vöruúrval sem á rætur sínar í ítalskri matarmenningu. Þar má meðal annars finna jómfrúarolíur Olifa, Rummo pasta, tómataafurðir, ólífur, hunang, brauðvörur, álegg, drykki og fleiri vörur frá ítölskum framleiðendum.
Á bak við Olifa standa Ása María Reginsdóttir og Emil Hallfreðsson. Hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði á Ítalíu þar sem þau bjuggu um árabil á meðan Emil lék þar knattspyrnu. Þar kynntust þau ítalskri matarmenningu af eigin raun og byggðu upp persónuleg tengsl við framleiðendur. Sú reynsla og ástríða fyrir góðu hráefni lagði grunninn að Olifa sem í dag flytur inn sérvalin ítölsk matvæli og byggir vöruframboð sitt á gæðum, uppruna og nánum tengslum við framleiðendur. Ása og Emil reka jafnframt veitingastaðinn rómaða, Olifa La Madre Pizza á Suðurlandsbraut 12 í Reykjavík.
„Við höfum lengi séð mikil tækifæri fyrir Olifa í veitingageiranum og fundið fyrir vaxandi eftirspurn eftir vörunum. Með Danól höfum við fundið öflugan samstarfsaðila með sterku söluteymi, faglegri þjónustu, dreifingu og lagerhaldi. Við hlökkum mikið til að færa enn fleiri fageldhúsum okkar vörur sem landsmenn þekkja vel og vilja nota,“ segir Ása María Reginsdóttir, hjá Olifa á Íslandi.
Með samstarfinu sameinast sérþekking Olifa á ítölskum hráefnum og framleiðendum og öflugt sölu- og dreifikerfi Danól. Markmiðið er ekki aðeins að auka aðgengi að vörunum heldur einnig að veita fagfólki ráðgjöf, innblástur og lausnir sem nýtast í daglegum rekstri eldhúsa.
„Olifa er afar spennandi viðbót við vöruframboð Danól. Vörurnar hafa sterka sérstöðu, skýran uppruna og sögu sem á erindi við íslensk fageldhús. Samstarfið fellur vel að þeirri stefnu okkar að bjóða viðskiptavinum fyrsta flokks hráefni, faglega ráðgjöf og áreiðanlega þjónustu,“ segir María Jóna Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri Danól.
-
Markaðurinn4 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn6 dagar síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?
-
Markaðurinn5 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
-
Markaðurinn4 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun10 klukkustundir síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu



